Rooney: Ég á enn nokkur góð ár eftir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. apríl 2016 10:00 Rooney hefur ekki spilað síðan í febrúar. Vísír/Getty
Wayne Rooney, framherji Manchester United og enska landsliðsins, er þess fullviss að hann eigi mörg góð ár eftir í boltanum. Rooney hefur verið frá vegna meiðsla síðan í febrúar og er staða hans í landsliðinu í talsverðri óvissu fyrir EM í sumar. Harry Kane og Jamie Vardy komu inn í vináttulandsleikjunum í síðasta mánuði og stóðu sig vel. „Ég tel að ég eigi enn nokkur ár eftir,“ sagði Rooney við enska fjölmiðla í dag. „Ég reyni fyrst og fremst að hjálpa mínu liði að ná árangri og það væri frábært ef mér tekst að skora nokkur mörk í leiðinni.“ „Mér hefur gengið virkilega vel að spila með enska landsliðinu síðustu tvö árin. Ég hef skorað mikið og sló markamet [Sir Bobby Charlton] sem hafði staðið í 40 ár.“ „Ég vil byggja á því. Ég á nú metið og vil bæta við eins mörgum mörkum og ég get. Ég var að spila virkilega vel áður en ég meiddist þannig að staðan gæti verið allt önnur. En þetta er allt í fortíðinni og maður verður að líta fram á veginn.“ Rooney átti erfitt uppdráttar fyrir áramót en komst í gang á nýju ári. Hann skoraði alls fjögur mörk og lagði upp þrjú til viðbótar í alls sjö leikjum áður en hann meiddist. Hann sagði í síðasta mánuði að hann myndi vænta þess að geta spilað á nýjan leik eftir landsleikjafríið sem var í lok mars.
Enski boltinn Tengdar fréttir Hodgson ánægður með enska framherjaúrvalið Enski landsliðsþjálfarinn valdi fimm framherja í hópinn fyrir næstu leiki og á Wayne Rooney inni. 17. mars 2016 16:45 Rooney gæti verið enn lengur frá vegna meiðsla Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, virðist vera glíma við einhverskonar bakslag í sinni endurhæfingu og gæti verið frá í einn mánuð til viðbótar við það sem upphaflega hafði verið greint frá vegna meiðsla á hné. 12. mars 2016 13:45 Hodgson útilokar ekki að taka Rashford með á EM í Frakklandi Þjálfari enska landsliðsins segist oft hafa gefið ungum strákum tækifærið og það hafi heppnast vel. 4. mars 2016 08:00 Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Ísfirðingar geta andað léttar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira
Hodgson ánægður með enska framherjaúrvalið Enski landsliðsþjálfarinn valdi fimm framherja í hópinn fyrir næstu leiki og á Wayne Rooney inni. 17. mars 2016 16:45
Rooney gæti verið enn lengur frá vegna meiðsla Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, virðist vera glíma við einhverskonar bakslag í sinni endurhæfingu og gæti verið frá í einn mánuð til viðbótar við það sem upphaflega hafði verið greint frá vegna meiðsla á hné. 12. mars 2016 13:45
Hodgson útilokar ekki að taka Rashford með á EM í Frakklandi Þjálfari enska landsliðsins segist oft hafa gefið ungum strákum tækifærið og það hafi heppnast vel. 4. mars 2016 08:00