Enski boltinn

Blæddi mikið úr eyra Jóhanns Bergs: Óttaðist um EM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður og leikmaður Charlton í ensku B-deildinni, var fluttur upp á sjúkrahús eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í leik gegn Ipswich í gær.

Jóhann Berg var nýbúinn að skalla boltann þegar bakvörður Ipswich kemur allt of seint, að sögn Jóhanns, og skallar hann í hlið höfuðsins, við eyrað.

„Þetta var svaka högg og ég fór beint niður,“ sagði Jóhann Berg í samtali við Vísi í morgun.

Sjá einnig: Jóhann Berg meiddist og Eggert skoraði

Vísir/Getty
„Ég fann strax að það var eitthvað að. Það var mikill þrýstingur í höfðinu og sjúkraþjálfarinn sá að það var byrjað að blæða úr eyranu.“

„Ég átti erfitt með að halda jafnvægi og var ekkert annað í stöðunni en að fara út af,“ sagði hann enn fremur en Jóhann Berg var fluttur upp á sjúkrahús til frekari aðhlynningar.

„Læknirinn sem skoðaði mig var hræddur um að eitthvað hefði brotnað. Það voru miklar bólgur en ég fór í myndatöku þar sem kom í ljós að það var ekkert brotið, sem betur fer.“

Jóhann Berg segir að það hafi blætt nokkuð lengi úr eyranu og það hafi verið fremur óhugnalegt.

„Það var ekki góð tilfnning enda fer maður að hugsa að eitthvað alvarlegt hafi gerst,“ segir hann og viðurkennir að hann hafi óttast um þátttöku hans á EM í Frakklandi í sumar.

Vísir/Getty
„Ég verð að vera hreinskilinn með það. Þegar læknirinn sagði mér að ef eitthvað væri brotið þyrfti ég að fara í aðgerð þá fór um mig. Hann hræddi mig aðeins, kallinn,“ sagði Jóhann Berg í léttum dúr.

„Þá greip um sig smá örvænting og ég óttaðist að þetta væri allt búið. En við fengum niðurstöðurnar úr myndatökunni frekar fljótt og það var gott að allt kom til baka í fínu lagi.“

Sjá einnig: Jóhann Berg skoraði en Aron Einar varamaður

Jóhann Berg fór í aðra læknisskoðun í morgun þar sem í ljós kom að hljóðhimnan hefði skaddast og að hann hefði fengið heilahristing.

„Ég spila örugglega ekki um helgina en þetta ættki ekki að vera löng fjarvera. Það verður bara að koma í ljós,“ segir hann en Charlton hefur aðeins tapað einum leik af síðustu sex og er skrefi nær að bjarga sæti sínu í deildinni.

„Við hættum ekki fyrr en taflan segir að þetta sé búið,“ segir Jóhann Berg en Charlton er enn næstneðst í deildinni og er nú sjö stigum frá öruggu sæti. „Við höldum áfram að berjast á meðan þetta er möguleiki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×