Blæddi mikið úr eyra Jóhanns Bergs: Óttaðist um EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. apríl 2016 11:07 Vísir/Getty
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður og leikmaður Charlton í ensku B-deildinni, var fluttur upp á sjúkrahús eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í leik gegn Ipswich í gær. Jóhann Berg var nýbúinn að skalla boltann þegar bakvörður Ipswich kemur allt of seint, að sögn Jóhanns, og skallar hann í hlið höfuðsins, við eyrað. „Þetta var svaka högg og ég fór beint niður,“ sagði Jóhann Berg í samtali við Vísi í morgun. Sjá einnig: Jóhann Berg meiddist og Eggert skoraðiVísir/Getty„Ég fann strax að það var eitthvað að. Það var mikill þrýstingur í höfðinu og sjúkraþjálfarinn sá að það var byrjað að blæða úr eyranu.“ „Ég átti erfitt með að halda jafnvægi og var ekkert annað í stöðunni en að fara út af,“ sagði hann enn fremur en Jóhann Berg var fluttur upp á sjúkrahús til frekari aðhlynningar. „Læknirinn sem skoðaði mig var hræddur um að eitthvað hefði brotnað. Það voru miklar bólgur en ég fór í myndatöku þar sem kom í ljós að það var ekkert brotið, sem betur fer.“ Jóhann Berg segir að það hafi blætt nokkuð lengi úr eyranu og það hafi verið fremur óhugnalegt. „Það var ekki góð tilfnning enda fer maður að hugsa að eitthvað alvarlegt hafi gerst,“ segir hann og viðurkennir að hann hafi óttast um þátttöku hans á EM í Frakklandi í sumar.Vísir/Getty„Ég verð að vera hreinskilinn með það. Þegar læknirinn sagði mér að ef eitthvað væri brotið þyrfti ég að fara í aðgerð þá fór um mig. Hann hræddi mig aðeins, kallinn,“ sagði Jóhann Berg í léttum dúr. „Þá greip um sig smá örvænting og ég óttaðist að þetta væri allt búið. En við fengum niðurstöðurnar úr myndatökunni frekar fljótt og það var gott að allt kom til baka í fínu lagi.“ Sjá einnig: Jóhann Berg skoraði en Aron Einar varamaður Jóhann Berg fór í aðra læknisskoðun í morgun þar sem í ljós kom að hljóðhimnan hefði skaddast og að hann hefði fengið heilahristing. „Ég spila örugglega ekki um helgina en þetta ættki ekki að vera löng fjarvera. Það verður bara að koma í ljós,“ segir hann en Charlton hefur aðeins tapað einum leik af síðustu sex og er skrefi nær að bjarga sæti sínu í deildinni. „Við hættum ekki fyrr en taflan segir að þetta sé búið,“ segir Jóhann Berg en Charlton er enn næstneðst í deildinni og er nú sjö stigum frá öruggu sæti. „Við höldum áfram að berjast á meðan þetta er möguleiki.“
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira