Viðurkenna ekki stoðsendinguna hans Gylfa á móti Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2016 14:00
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið maðurinn á bak við tvö sigurmörk Swansea á síðustu fjórum dögum en velska liðið fór langt með að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni með sigurleikjum á móti Arsenal og Norwich. Gylfi skoraði sigurmarkið á móti Norwich í gær og hafði áður lagt upp sigurmark Ashley Williams í sigrinum á Arsenal á miðvikudagskvöldið. Enska úrvalsdeildin var þó ekki tilbúinn að samþykkja það að Gylfi fái stoðsendingu í þessu marki Ashley Williams sem má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Gylfi tók aukaspyrnu út á hægri kanti og sendi frábæran bolta fyrir markið. Ashley Williams þurfti nánast ekkert að gera því boltann fór eiginlega í hann og inn. Það virðist hinsvegar vera þannig að örlítil snerting Petr Cech, markvarðar Arsenal, hafi verið nóg til að koma í veg fyrir að Gylfi fengi skráða á sig stoðsendingu. Það er illa farið með tölfræði íslenska landsliðsmannsins með þessari stórfurðulegu ákvörðun markanefndar ensku úrvalsdeildarinnar. Þær gerast nefnilega varla meiri stoðsendingarnar en í þessu mikilvæga marki Ashley Williams. Föst aukaspyrna Gylfa inn á markteiginn var illviðráðanlega fyrir varnarmenn og markmann Arsenal og gaf Ashley Williams tækifæri til að skora sitt annað mark á tímabilinu. Gylfi hefur því enn bara lagt upp eitt mark í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili samkvæmt tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar. Sú stoðsending kom í sigurleik á móti Manchester United í ágústlok.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi hetja Swansea í fallslagnum | Sjáðu markið Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Swansea City gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Norwich City í fallslag í ensku úrvalsdeildinni í dag. 5. mars 2016 16:45 Gylfi fékk átta fyrir innkomuna í Lundúnum: „Svo rosalega mikilvægur þessu liði“ Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á í hálfleik og lagði upp sigurmarkið gegn Arsenal. 3. mars 2016 07:30 Gylfi lagði upp sigurmark Swansea gegn Arsenal | Sjáið mörkin Arsenal tapaði sínum öðrum leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið tapaði dýrmætum stigum gegn Swansea á heimavelli, en lokatölur 2-1 sigur Swansea. Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Swansea. 2. mars 2016 21:30 Fyrrum fyrirliði Liverpool: Gylfi var yfirburðarmaður á vellinum í gær Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Swansea City gríðarlega mikilvægan sigur á Norwich í fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í gær. 6. mars 2016 10:13 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Íslenski boltinn Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Sjá meira
Gylfi hetja Swansea í fallslagnum | Sjáðu markið Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Swansea City gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Norwich City í fallslag í ensku úrvalsdeildinni í dag. 5. mars 2016 16:45
Gylfi fékk átta fyrir innkomuna í Lundúnum: „Svo rosalega mikilvægur þessu liði“ Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á í hálfleik og lagði upp sigurmarkið gegn Arsenal. 3. mars 2016 07:30
Gylfi lagði upp sigurmark Swansea gegn Arsenal | Sjáið mörkin Arsenal tapaði sínum öðrum leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið tapaði dýrmætum stigum gegn Swansea á heimavelli, en lokatölur 2-1 sigur Swansea. Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Swansea. 2. mars 2016 21:30
Fyrrum fyrirliði Liverpool: Gylfi var yfirburðarmaður á vellinum í gær Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Swansea City gríðarlega mikilvægan sigur á Norwich í fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í gær. 6. mars 2016 10:13