Gylfi hefði getað skorað þrennu hjá Joe Hart | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2015 13:30 Gylfi Þór Sigurðsson svekkir sig í leiknum í gær. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson átti mjög fínan leik með Swansea City í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið tapaði 2-1 á útivelli á móti Manchester City. Gylfi og félagar fengu færi til þess að fá mun meira út úr þessum leik en City-liðið skoraði sigurmark sitt í uppbótartíma leiksins. Þetta var einn allra besta frammistaða Gylfa á tímabilinu en hann var valinn bestur hjá Swansea hjá mörgum miðlum þar á meðal hjá Wales Online og Daily Mail. Gylfi átti möguleika á því að skora eitt, tvö eða jafnvel þrjú mörk hjá Joe Hart í þessum leik ef íslenski miðjumaðurinn hefði haft heppnina með sér. Enski landsliðsmarkvörðurinn Joe Hart varði hinsvegar vel frá okkar manni auk þess að mark sem Gylfi skoraði undir lok leiksins var dæmt af. Hér fyrir neðan má sjá myndband með færum Gylfa í leiknum en það var Ríkharð Guðnason sem lýsti leiknum með tilþrifum. Gylfa er farið að lengja eftir marki í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur ekki skorað síðan á móti Aston Villa 24. október. Með fleiri svona frammistöðum eins og í gær er ekki spurning um að sú bið verið senn á enda. Hér fyrir neðan má sjá samantekt á færum Gylfa í leiknum á Ethiad-leikvanginum í gær.Færi Gylfa Þórs Sigurðssonar á móti Manchester City
Enski boltinn Tengdar fréttir Dramatískur sigur City | Sjáðu mörkin Varamaðurinn Kelechi Iheanacho tryggði Manchester City dramatískan sigur á Swansea City á Etihad vellinum í dag. Lokatölur 2-1. 12. desember 2015 16:45 Messan: Neisti í Gylfa | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson átti ágætan leik þegar Swansea steinlá, 0-3, fyrir Leicester City í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. 8. desember 2015 11:00 Gylfi fær nýjan stjóra | Monk rekinn frá Swansea Garry Monk var í dag rekinn sem knattspyrnustjóri Swansea City en velska liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. 9. desember 2015 16:27 Stóri Sam ósáttur við brottrekstur stjóra Gylfa Þórs Garry Monk var rekinn frá Swansea eftir áratug á Liberty-vellinum sem leikmaður og þjálfari. 11. desember 2015 13:15 Gylfi fær nýjan stjóra í byrjun næstu viku Gus Poyet, Avram Grant og David Moyes líklegastir til að taka við Swansea. 11. desember 2015 11:30 Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira
Dramatískur sigur City | Sjáðu mörkin Varamaðurinn Kelechi Iheanacho tryggði Manchester City dramatískan sigur á Swansea City á Etihad vellinum í dag. Lokatölur 2-1. 12. desember 2015 16:45
Messan: Neisti í Gylfa | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson átti ágætan leik þegar Swansea steinlá, 0-3, fyrir Leicester City í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. 8. desember 2015 11:00
Gylfi fær nýjan stjóra | Monk rekinn frá Swansea Garry Monk var í dag rekinn sem knattspyrnustjóri Swansea City en velska liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. 9. desember 2015 16:27
Stóri Sam ósáttur við brottrekstur stjóra Gylfa Þórs Garry Monk var rekinn frá Swansea eftir áratug á Liberty-vellinum sem leikmaður og þjálfari. 11. desember 2015 13:15
Gylfi fær nýjan stjóra í byrjun næstu viku Gus Poyet, Avram Grant og David Moyes líklegastir til að taka við Swansea. 11. desember 2015 11:30