Rodgers bjóst við því að vera rekinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2015 12:30 Brendan Rodgers talar við sína menn. Vísir/Getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, var alls ekki öruggur um framtíð sína hjá félaginu þegar verst gekk hjá liðinu fyrir áramót. Hann viðurkennir þetta í viðtali við Sky Sports. Útlitið var verst eftir 3-1 tap á móti Crystal Palace í nóvember en það var þriðja tap liðsins í röð og eftir leikinn sat Liverpool-liðið í tólfta sæti deildarinnar. „Eftir Palace-leikinn leið mér þannig að það skipti ekki máli hversu mikinn stuðning ég hefði. Svona frammistaða gengi ekki mikið lengur," sagði Brendan Rodgers. „Ég ætlaði samt ekki að gefast upp. Ég mun alltaf berjast fyrir mínu. Ég elska að vera hér hjá Liverpool og vil ná árangri hér," sagði Rodgers. „Ég gerði mér vel grein fyrir stöðunni því reynsla mín frá Reading kenndi mér það. Ég lærði af því að vera rekinn þaðan. Ég var hjá Reading með fullan stuðning frá stjórnarformanninum sem reyndist mér vel en ég fékk samt bara 20 leiki," sagði Brendan Rodgers. „Það sem ég lærði er að það skiptir ekki máli hversu mikinn stuðning þú hefur frá stjórninni, eigendunum eða öðrum sem ráða því þú verður að ná úrslitum og þú verður að vinna leiki," sagði Brendan Rodgers. „Ég varð hreinlega að fara að taka ákvarðanir sem kæmu okkur aftur nálægt því þar sem við vorum áður. Það hefur síðan verið frábært að sjá breytinguna á liðinu. Ég hefði átt að gera þetta fyrr," sagði Rodgers. Liverpool vann 2-1 sigur á Englandsmeisturum Manchester City um síðustu helgi, hefur ekki tapað í síðustu ellefu deildarleikjum sínum, unnið sex af síðustu sjö og mætir Burnley á Anfield í kvöld.Brendan Rodgers fagnar sigrinum á móti Manchester City.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Fótbolti Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Körfubolti Þróttur skoraði sex og flaug áfram Íslenski boltinn Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Fótbolti Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Valur marði Fram í framlengingu Íslenski boltinn Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Íslenski boltinn Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga „Snýst um félagið, liðið og hvað við áorkum saman“ Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Watkins hélt Meistaradeildardraum Villa á lífi „Vörðust og vörðust meira ásamt því að tefja tímann“ Man. City tapaði mjög óvænt stigum á móti botnliðinu Haaland hreinskilinn: Ég hef ekki verið nægilega góður Vill að Arsenal neiti að standa heiðursvörð fyrir Liverpool Arteta varar Arsenal fólk við: Erfiðasta staðan að fylla Arne Slot vonsvikinn með Trent Alexander-Arnold Mac Allister besti leikmaðurinn í fyrsta sinn Salah valinn bestur af blaðamönnum Fótboltaparið eignaðist son og skírði hann Jagger Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl „Hverjum er ekki sama þó við séum í veseni í deildinni“ „Liðið ætti að vera betra en það er en við erum að reyna“ Sheffield United með gott forskot í umspili Championship Rio Ferdinand lagður inn á sjúkrahús Fagnaði í bol með fullt af myndum af sjálfum sér Gætu þurft að bíða í sautján ár eftir nýjum leikvangi Arteta skaut á Liverpool á fundi fyrir PSG leikinn Ráðherra bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar Brasilíudvöl í kortunum hjá Jorginho Sjá meira