Chelsea vinnur upp 11 stiga forskot United og hirðir af því Meistaradeildarsætið Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. nóvember 2015 10:30 Chelsea-menn taka miðju eftir að fá á sig sigurmarkið gegn Stoke. vísir/getty
Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Aston Villa sem starfað hefur lengi sem knattspyrnusérfræðingur Sky Sports, telur að Manchester United nái ekki Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni. Merson opinberar hvaða lið hann telur að hafni í efstu fjórum sætunum á vefsíðu Sky Sports í dag, en að hans mati eru það Manchester City, Arsenal, Tottenham og Chelsea. Manchester City og Arsenal eru í efstu tveimur sætunum með 26 stig, United í fjórða sæti með 24 stig og Tottenham sæti neðar með 21 stig þegar tólf umferðir eru búnar af deildinni. Chelsea er aftur á móti í stórkostlegum vandræðum með aðeins ellefu stig í 16. sæti, þremur stigum frá fallsæti en þrettán stigum frá Meistaradeildarsæti.Frábær tapleikur Chelsea „Ég get ekki gert upp á milli Manchester City og Arsenal. City mætir ekki alltaf til leiks gegn minni liðunum eins og sást á sunudaginn gegn Aston Villa. Ef ég þarf að velja annað hvort liðið spái ég City titlinum,“ segir Merson um City og Arsenal. „Ég veit að þetta kemur fólki á óvart,“ segir hann um ákvörðun sína að spá Tottenham þriðja sætinu. „Tottenham hefur komið mér á óvart og algjörlega breytt skoðun minni á liðinu. Það sem liðið gerði á Emirates-vellinum var magnað. Þetta er ungt lið með góðan stjóra en til þess að liðið nái þetta langt þurfa lykilmenn að haldast heilir,“ segir Merson. Chelsea tapaði, 1-0, gegn Stoke í síðustu umferð en þar fannst Merson liðið spila frábærlega. „Ef Chelsea spilar áfram eins og það gerði gegn Stoke vinnur það fullt af fótboltaleikjum. Ég veit það hljómar kjánalega fyrst liðið tapaði en frammistaða liðsins var bara mun betri en áður,“ segir Merson. „Á sama tíma leit United aldrei út fyrir að geta skorað gegn WBA þar til Jesse Lingaard bjargaði liðinu með frábæru marki. Chelsea þarf að vinna upp fullt af stigum en ég sé það fara á flug á meðan United getur gert of mörg jafntefli,“ segir Paul Merson.
Enski boltinn Tengdar fréttir Messan: Þetta vilja stuðningsmenn United sjá Jesse Lingard hefur verið að leika ágætlega fyrir Man. Utd upp á síðkastið og skoraði um síðustu helgi. Messu-strákarnir skoðuðu strákinn. 10. nóvember 2015 20:30 Van Gaal: Þurfum meiri hraða og sköpunargáfu á vængina Hollenski stjórinn er sæmilega sáttur með Jesse Lingard og Juan Mata en vill meiri hraða. 9. nóvember 2015 10:30 Stjóralausir Chelsea-menn töpuðu þriðja leiknum í röð | Sjáðu markið Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, þurfti að horfa upp á 0-1 tap gegn Stoke af hótelherberginu en hann tók út leikbann í dag. Þetta var þriðja tap Chelsea í röð en ensku meistararnir hafa aðeins unnið tvo leiki af síðustu níu í ensku úrvalsdeildinni. 7. nóvember 2015 19:15 Yorke gagnrýnir Van Gaal: Það nennir enginn að horfa á fótboltann sem hann vill spila Enn bætist í hóp fyrrverandi leikmanna Manchester United sem hafa engan smekk fyrir spilamennsku liðsins undir stjórn Van Gaal. 10. nóvember 2015 10:00 Lingard kom Manchester United á bragðið í öruggum sigri | Sjáðu mörkin Jesse Lingard kom Manchester United á bragðið með fyrsta marki sínu fyrir félagið í öruggum 2-0 sigri á West Brom. 7. nóvember 2015 16:45 Messan: Það er svitalykt af þér Ryan Shawcross, varnarmaður Stoke, náði að fara illa með Diego Costa, framherja Chelsea, um síðustu helgi og það fór í taugarnar á Costa. 10. nóvember 2015 22:45 Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Fótbolti Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Fleiri fréttir Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Óvænt byrjunarlið hjá enska landsliðinu í kvöld Leicester City tapaði næstum því tólf milljörðum á einu tímabili „Salah gæti spilað í sjö ár í viðbót“ Roy Hodgson snýr óvænt aftur í boltann 78 ára gamall Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Sjá meira
Messan: Þetta vilja stuðningsmenn United sjá Jesse Lingard hefur verið að leika ágætlega fyrir Man. Utd upp á síðkastið og skoraði um síðustu helgi. Messu-strákarnir skoðuðu strákinn. 10. nóvember 2015 20:30
Van Gaal: Þurfum meiri hraða og sköpunargáfu á vængina Hollenski stjórinn er sæmilega sáttur með Jesse Lingard og Juan Mata en vill meiri hraða. 9. nóvember 2015 10:30
Stjóralausir Chelsea-menn töpuðu þriðja leiknum í röð | Sjáðu markið Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, þurfti að horfa upp á 0-1 tap gegn Stoke af hótelherberginu en hann tók út leikbann í dag. Þetta var þriðja tap Chelsea í röð en ensku meistararnir hafa aðeins unnið tvo leiki af síðustu níu í ensku úrvalsdeildinni. 7. nóvember 2015 19:15
Yorke gagnrýnir Van Gaal: Það nennir enginn að horfa á fótboltann sem hann vill spila Enn bætist í hóp fyrrverandi leikmanna Manchester United sem hafa engan smekk fyrir spilamennsku liðsins undir stjórn Van Gaal. 10. nóvember 2015 10:00
Lingard kom Manchester United á bragðið í öruggum sigri | Sjáðu mörkin Jesse Lingard kom Manchester United á bragðið með fyrsta marki sínu fyrir félagið í öruggum 2-0 sigri á West Brom. 7. nóvember 2015 16:45
Messan: Það er svitalykt af þér Ryan Shawcross, varnarmaður Stoke, náði að fara illa með Diego Costa, framherja Chelsea, um síðustu helgi og það fór í taugarnar á Costa. 10. nóvember 2015 22:45