Kane enn og aftur hetja Tottenham | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. mars 2015 00:01 Harry Kane skallar boltann í netið og kemur Tottenham í 0-1. vísir/getty
Harry Kane var enn og aftur á skotskónum þegar Tottenham vann 1-2 sigur á QPR í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.Mörkin í leiknum má sjá hér að neðan. Kane skoraði bæði mörk Tottenham í leiknum en hann er nú kominn með 16 mörk í úrvalsdeildinni og er nú aðeins marki á eftir Diego Costa og Sergio Agüero á listanum yfir markahæstu menn deildarinnar. Leikurinn í dag var mjög fjörugur og QPR var síst lakari aðilinn. Hugo Lloris átti góðan leik í marki Tottenham og nýliðarnir höfðu t.a.m. átt skot í slá áður en Kane kom Spurs yfir á 34. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Andros Townsend. Kane bætti svo öðru marki við á 68. mínútu. Hann fékk þá sendingu inn fyrir vörn QPR frá Ryan Mason, lék á Rob Green og skoraði í autt markið. Sandro minnkaði muninn í 1-2 með fallegu marki á 75. mínútu en nær komust heimamenn ekki. Með sigrinum komst Tottenham upp fyrir Southampton í 6. sætið úrvalsdeildarinnar en lærisveinar Mauricio Pochettino er nú aðeins þremur stigum frá Meistaradeildarsæti. QPR er hins vegar í 18. og þriðja neðsta sæti deildarinnar en liðið er búið að tapa fimm af síðustu sex leikjum sínum.QPR 0-1 Tottenham QPR 0-2 Tottenham QPR 1-2 Tottenham
Enski boltinn Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira