Gylfi Þór sér ekki eftir því að hafna Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. mars 2015 09:15 Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að spila 99 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skora 20 mörk. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson spilar sinn 100. leik í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöldið eftir viku þegar Swansea tekur á móti Liverpool sem hefur ekki tapað deildarleik á árinu. Þar mætir Gylfi Þór manninum sem gaf honum fyrstu tækifærin í enska boltanum, Brendan Rodgers, knattspyrnustjóra Liverpool. Rodgers tók Gylfa inn í liðið hjá Reading á sínum tíma og fékk hann á lán til Swansea frá Hoffenheim í janúar 2012.Sjá einnig:Sjáið öll mörkin hans Gylfa á tímabilinu | Myndbönd „Þar sem ég tengdist Brendan virtist það líklegra í fjölmiðlum að ég færi til Liverpool í stað Tottenham,“ segir Gylfi Þór um vistaskiptin frá Hoffenheim til Englands sumarið 2012. „Tottenham sýndi bara mikinn áhuga á þeim tíma og í liðinu voru leikmenn eins og Gareth Bale. Þar leit allt mjög vel út.“Brendan Rodgers gaf Gylfa tækifærið.vísir/gettyGylfi Þór sér ekki eftir því að hafa farið til Tottenham þó leiktíðirnar tvær á White Hart Lane hafi verið upp og ofan fyrir miðjumanninn. „Ég hef alltaf sagt að ég naut mín hjá Spurs. Ég bætti mig sem leikmaður þannig ég lít ekki til baka og hugsa um hvað hefði getað gerst,“ segir Gylfi. „Auðvitað var mikið um breytingar á liðinu á þessum tveimur árum og nýjir leikmenn voru fengnir til liðsins. En ég mun alltaf minnast tímans þar sem jákvæða reynslu.“ Gylfi Þór hefur ekkert nema góða hluti um Brendan Rodgers að segja, en undir hans stjórn er Liverpool-liðið á miklum skriði á nýju ári. „Hann er maðurinn sem gaf mér fyrst tækifæri í aðalliðinu. Ég spilaði mína fyrstu leiki hjá Reading undir hans stjórn og hann fékk mig til Swansea. Ég verð honum alltaf þakklátur,“ segir Gylfi Þór. „Brendan er frábær knattspyrnustjóri. Hann er góður í samskiptum og verndar sína leikmenn. Hann er búinn að komast í gegnum tíma þar sem fólk vildi hann í burtu frá Anfield. En hann kom til baka sterkari og liðið er að spila mjög vel.“
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira