Erlent

Komandi barátta líkt og stríðsátök

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ebólufaraldurinn, sem nú hefur dregið rúmlega 1000 manns til dauða í vesturhluta Afríku, gæti varað í allt að hálft ár í viðbót, að sögn sérfræðingahjá samtökunum Læknar án landamæra. Joanne Liu, formaður samtakanna, sagði á blaðamannafundi í dag að komandi baráttu mætti líkja við stríðsátök.

Heilbrigðisstarfsfólk segir að ómögulegt sé að segja nákvæmlega til um heildarfjölda látinna ekki é hægt að halda utan um öll tilfellin sem koma upp á degi hverjum. Ættingar sjúklinga eigi það einng til að halda veikum ástvinum sínum heima fyrir af ótta við að smitast í neyðarskýlunum sem komið hefur verið upp víðsvegar á vesturströnd álfunnar.

Aðrir séu jarðsettir áður en heilbrigðisstarfsfólk kemst á svæðin sem mörg eru afskekkt. Til að mynda hafi um 80 tilfelli af ebólunni skotið upp kollinum á síðustu dögum á einu svæði, sem ekki hafði verið rannsakað áður.

Helsta verkefni heilbrigðisstarfsfólks er nú, sem fyrr,að takmarka fólksflutninga og koma upp sóttkvíum í þeim löndum sem verst hafa orðið úti í faraldrinum; Síerra Leone, Gíneu, Nígeríu og Líberíu, til að draga úr dreifingu veirunnar.

Margir sjúklingar sem hafa verið í felum eru nú farnir að stíga fram og leita sér aðstoðar eftir því sem neyðarskýlum hefur fjölgað á síðustu dögum. Legupláss í slíkum skýlum fyllast nú hraðar en gert var ráð fyrir sem talið er til merkis um það að útbreiðsla veirunnar sé meiri en áður hefur verið talin.

Í heilsugæslu einni í Líberíu á vegum Lækna án landamæra eru sem dæmi 40 rúm en alls bíða 137 eftir aðstoð á stofnunni. Hafa þeir þurft að hafast við á göngum gæslunnar á meðan þeir bíða eftir því að fá greiningu. Sökum mannfjöldans er nær ómögulegt að aðgreina sýkta frá heilbrigðum á stofnunum sem þessum.

Sömu sögu er að segja af 80 rúmum í neyðarskýli í Líberíu sem fylltist samstundist eftir að gæslan var opnuð. Daginn eftir leituðu svo rúmlega 20 manns til viðbótar aðstoðar.


Tengdar fréttir

Annar sérfræðingur fellur í Síerra Leone

Mikill skortur er nú á læknum í landinu en andlát Dr. Modupeh Cole, ber að einungis tveimur vikum eftir fráfall dr. Sheiks Omarrs Khan sem stjórnaði aðgerðum gegn veirunni í austurhluta landins.

Ebóla berst til Nígeríu

Stjórnvöld í Nígeríu hafa staðfest að líberskur maður hefði látist úr Ebóluveiru þar í landi, fjölmennasta ríki í Afríku.

Hætta ferðamanna á smiti hverfandi

Ekkert lát er á sýkingahrinunni af völdum ebólaveiru sem hófst í Gíneu í byrjun febrúar á þessu ári, að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins.

Tveir Bandaríkjamenn greinast með Ebóla

Fjölmargir læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem vinna að meðhöndlun ebólufaraldursins í Vestur-Afríku hafa greinst með veiruna.

Skorað á WHO að útvega Afríku ebólalyf

Sérfræðingar segja að til séu nokkur mismunandi lyf og bóluefni sem hægt væri að nota til þess að berjast gegn þessum illskeytta sjúkdómi.

Ebólasmitaður maður til Bandaríkjanna

Sjúkrahús í Atlanta í Bandaríkjunum býr sig nú undir að taka á móti bandarískum hjálparstarfsmanni sem smitaðist af hinnum banvæna ebóla-vírusi í Vestur-Afríku.

Bretar óttast ebólufaraldur

Ebólaveira er alvarleg ógn við Bretland að sögn Philip Hammond, utanríkisráðherra landsins.

Ebóla heldur áfram að breiðast út

Tveir hafa nú greinst á skömmum tíma með ebólu í Nígeríu, fjölmennasta ríki í Afríku. Annar þeirra lést í síðustu viku og er læknir hans nú sýktur af þessari mannskæðu veiru.

Meira en þúsund manns hafa látið lífið

Einungis tveir Bandaríkjamenn og einn Spánverji hafa til þessa fengið að njóta góðs af lyfjum. Afríkubúar hafa hins vegar enn engin lyf fengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×