Enski boltinn

Katrín enskur meistari með Liverpool annað árið í röð - dramatísk lokaumferð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Ómarsdóttir.
Katrín Ómarsdóttir. Vísir/Getty
Katrín Ómarsdóttir og félagar hennar í Liverpool tryggði sér í dag enska meistaratitilinn annað árið í röð eftir magnaða lokaumferða þar sem allt féll með Liverpool-liðinu sem varð í þriðja sæti fyrir síðustu umferðina.

Katrín hefur þá orðið enskur meistari bæði árin sín hjá Liverpool en hún gekk til liðs við liðið fyrir síðasta tímabil. Liverpool hafði fyrir það tímabil endað í neðsta sætinu tvö tímabil á undan.

Katrín spilaði allan leikinn með Liverpool í kvöld en mörk liðsins, sem komu öll í seinni hálfleiknum, skoruðu Natasha Dowie, Lucy Bronze og Fara Williams úr vítaspyrnu.

Liverpool varð að treysta á það að vinna sinn leik með meira en einu marki, Chelsea mátti ekki fá sig og Birmingham mátti ekki vinna. Liverpool vann 3-0 sigur á Bristol Academy, Chelsea tapaði 1-2 á útivelli á móti Manchester City og Birmingham náði aðeins 2-2 jafntefli á móti Notts County á heimavelli.

Liverpool og Chelsea urðu jöfn að stigum en Liverpool vann enska meistaratitilinn á markatölu. Birmingham lenti 0-2 undir og vantaði bara eitt mark í viðbót til þess að tryggja sér sigur í deildinni.


Tengdar fréttir

Katrín og félagar nálgast titilinn

Katrín Ómarsdóttir og stöllur hennar í Liverpool eru komnar með aðra hönd á Englandsmeistaratitilinn eftir flottan sigur á nágrönnum sínum í Everton í kvöld.

Katrín lék í jafntefli gegn Everton

Katrín Ómarsdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool Ladies í kvöld. Liverpool-stúlkur léku þá gegn nágrannastúlkunum í Everton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×