Enski boltinn

Mata: Mikilvægt að skilja hversu stórt félagið er

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ander Herrera, David De Gea og Juan Mata, Spánverjarnir í herbúðum Manchester United.
Ander Herrera, David De Gea og Juan Mata, Spánverjarnir í herbúðum Manchester United. Vísir/Getty
Juan Mata, leikmaður Manchester United, segist fullur tilhlökkunar fyrir næsta tímabili.

„Síðasta tímabil var mjög erfitt fyrir félagið - en allir voru svo almennilegir við mig, leikmennirnir, knattspyrnustjórinn og stuðningsmennirnir,“ sagði Mata sem var keyptur á metfé til United frá Chelsea í janúar. Spánverjinn lék 15 leiki með United á síðustu leiktíð, skoraði sex mörk og lagði upp fjögur. Gengi United var hins vegar slakt, en liðið endaði í 7. sæti, 22 stigum á eftir meistaraliði Manchester City.

Mata segist hafa verið duglegur að kynna sér sögu Manchester United.

„Það er mikilvægt að skilja hversu stórt félagið er og læra um sögu þess og alla titlana sem það hefur unnið,“ sagði Mata og bætti við að það hefði verið upplifun að fara í æfingaferð til Bandaríkjanna.

„Þegar þú ferð í æfingaferðir erlendis sérðu hversu stórt félagið er á heimsvísu.

„Þú finnur fyrir því á Englandi, en í æfingaferðinni í Bandaríkjunum biðu aðdáendur eftir okkur hvar sem við komum og þarlendir fjölmiðlar sýndu því sem við vorum að gera mikinn áhuga - sem er í raun ótrúlegt.“

Mata kveðst einnig vera ánægður með að spila við hlið landa síns, Ander Herrera, sem gekk til liðs við United í sumar.

„Ég var mjög ánægður þegar Herrera sendi mér skilaboð um að hann væri orðinn leikmaður United.

„Ég var svo ánægður fyrir hans hönd. Ég þekkti hann frá því að við vorum í yngri landsliðum Spánar. Hann á skilið að vera hjá félagi eins og United,“ sagði Mata.

Manchester United tekur á móti Swansea í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.


Tengdar fréttir

Van Gaal ekki ánægður

Louis van Gaal var ekki sáttur með spilamennsku Manchester United gegn Valencia í gær.

Spjaldtölvur bannaðar á Old Trafford

Áhorfendur á heimaleikjum Manchester United á komandi tímabili mega ekki mæta á leikinn með spjaldtölvur eða önnur samskonar tæki en þetta kemur fram í staðarblaðinu Manchester Evening News.

Tiltektin hafin hjá van Gaal

Louis van Gaal hefur tilkynnt nokkrum leikmönnum Manchester United að þeir eigi sér ekki framtíð hjá félaginu.

Shaw frá í mánuð

Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United meiddist á æfingu liðsins á dögunum og verður ekki með liðinu næsta mánuðinn samkvæmt heimildum SkySports.

Rooney fær fyrirliðabandið hjá Manchester United

Wayne Rooney mun bera fyrirliðaband Manchester United í vetur en þetta staðfesti Louis Van Gaal eftir æfingarleik liðsins gegn Valencia. Skoski miðjumaðurinn Darren Fletcher verður varafyrirliði liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×