Kranjcar bjargaði stigi fyrir QPR | Sjáðu mörkin 20. september 2014 00:01
Mark Hughes mætti aftur á sinn gamla heimavöll í dag, en lærisveinar Hughes í Stoke gerðu jafntefli við QPR á Loftus Road í Lundúnum. Hughes stýrði QPR í tæpt ár, frá janúar 2012 til nóvember 2012, en hann sá lærisveina sína í Stoke gera jafntefli. Stoke komst yfir eftir einungis ellefu mínútna leik. Eftir góða fyrirgjöf frá vinstri skallaði Peter Crouch boltann fyrir markið þar sem Mame Biram Diouf ýtti boltanum yfir línuna. Þannig virtust leikar ætla standa í hálfleik, en á 43. mínútu jöfnuðu heimamenn. Steven Caulker skallaði boltann að marki Stoke eftir hornspyrnu þar sem Crouch og Charlie Adam voru báðir tilbúnir að hreinsa, en gekk ekki betur en svo að Crouch potaði honum í sitt eigið mark. Staðan 1-1 í hálfleik. Síðari hálfleikur var ekki nema sex mínútna gamall þegar Stoke komst yfir á ný. Fyrrum Liverpool-mennirnir Crouch og Victor Moses voru þar að verki, en Moses gaf góðan bolta fyrir markið þar sem Crouch var mættur og þrumaði boltanum í netið. Heimamenn voru ekki að baki dottnir. Þegar einungis mínúta var eftir af venjulegum leiktíma fengu þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Stoke. Niko Kranjcar gerði sér lítið fyrir og skrúfaði boltann yfir vegginn og í hornið. Lokatölur 2-2. QPR er í fimmtánda sæti deildarinnar með fjögur stig, en Stoke er tveimur sætum ofar með stigi meira.
Enski boltinn Mest lesið Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Handbolti „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Fótbolti Valverde á spítala eftir önnur slagsmál við Tchouameni Fótbolti Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Fótbolti Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Handbolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti Galin hegðun sjálfboðaliða Sport Shakira gefur út nýtt HM lag Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Sjá meira