Enski boltinn

Gylfi: Svo erfitt að verjast City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stevan Jovetic skorar eitt marka City í gær.
Stevan Jovetic skorar eitt marka City í gær. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson hrósaði Manchester City eftir 5-1 sigur liðsins á Tottenham í gær.

Gylfi var í byrjunarliði Tottenham en var skipt af velli snemma í síðari hálfleik eftir að bakvörðurinn Danny Rose fékk að líta rauða spjaldið.

„Það er erfitt að spila gegn þeim með fullmanna lið en enn erfiðara einum færri. Þeir eru svo góðir þegar þeir sækja og afar erfitt að verjast gegn þeim,“ sagði Gylfi í viðtali á heimasíðu Tottenham.

„Mér fannst City byrja betur og hefði liðið getað skorað nokkur mörk á fyrstu 25 mínútunum.“

„Síðan komumst við aftur inn í leikinn og byrjuðum seinni hálfleikinn alls ekki illa. En svo gerði rauða spjaldið og vítaspyrnan okkur auðvitað mjög erfitt fyrir.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×