Manchester City á toppinn eftir 5-1 sigur á Gylfa og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2014 19:15 Vísir/NordicPhotos/Getty
Manchester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 5-1 sigur á Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum á White Hart Lane í kvöld. Tottenham var manni færri síðustu 40 mínútur leiksins. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham en var tekinn af velli á 55. mínútu strax eftir að Manchester City komst í 3-0 og fimm mínútum eftir að Spurs-liði missti mann af velli. Þetta var þó ekki eintóm gleði fyrir Manchester City því liðið missti argentínska sóknarmanninn Sergio Agüero meiddan af velli í fyrri hálfleik. Sergio Agüero hafði áður farið margoft illa með Michael Dawson, miðvörð Tottenham, og komið City í 1-0 eftir stungusendingu frá David Silva á 15. mínútu. Manchester City hafði mikla yfirburði fyrsta hálftímann en Tottenham átti góðan endasprett og Michael Dawson skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu en það var umdeildur dómur. Úrslitin réðust þó eiginlega á 50. mínútu þegar Danny Rose felldi Edin Džeko og fékk bæði rautt spjald og dæmt á sig víti sem Yaya Touré nýtti. Edin Džeko skoraði þriðja markið skömmu síðar, Étienne Capoue minnkaði fljótlega muninn en Stevan Jovetić kom City síðan í 4-1 tólf mínútum fyrir leikslok. Það var síðan fyrirliðinn Vincent Kompany sem innsiglaði 5-1 stórsigur City undir lokin. Manchester City er með eins stigs forskot og miklu betri markatölu en Arsenal sem tapaðið stigum á móti Southampton í gær. Þetta var áttundi deildarsigur Manchester City í röð og liðið er orðið afar sigurstranglegt í baráttunni um enska meistaratitilinn í ár. Tottenham tapaði fyrri leiknum 0-6 á Ethiad-leikvanginum í Manchester og endar því með markatöluna 1-11 á móti City á þessari leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Chelsea - Aston Villa | Endar sigurhrinan á Brúnni? Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Sjá meira