Enski boltinn

Holtby og Capoue mögulega á förum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tim Sherwood, stjóri Tottenham.
Tim Sherwood, stjóri Tottenham. Vísir/Getty
Svo gæti farið að miðjumennirnir Lewis Holtby og Etienne Capoue fari frá Tottenham áður en lokað verður fyrir félagaskipti um helgina.

Hvorugur hefur fengið mikið að spila síðan að Tim Sherwood tók við sem knattspyrnustjóri liðsins en hann hefur fremur kosið að nota hinn unga Nabil Bentaleb í undanförnum leikjum.

Sherwood segist hafa skilning á því að þeir Holtby og Capoue vilji spila meira. „Ég spilaði sjálfur og veit vel að allir leikmenn vilji spila. Maður verður því að sýna leikmönnum sanngirni þegar þeir fá ekki mikið af tækifærum,“ sagði Sherwood.

Holtby gæti mögulega snúið aftur til Schalke í Þýskalandi og þá hefur Capoue verið orðaður við Napoli á Ítalíu.

„Mínar skyldur eru þó fyrst og fremst gagnvart liðinu,“ ítrekaði Sherwood.


Tengdar fréttir

Holtby vill fleiri tækifæri

Lewis Holtby, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tottenham, segist gjarnan vilja fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu en hann hefur fengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×