Enski boltinn

Holtby lánaður til Fulham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Lewis Holtby, leikmaður Tottenham, hefur verið lánaður til grannliðsins Fulham til loka tímabilsins.

Holtby hafði verið óánægður með hversu lítið hann hefur fengið að spila hjá liðinu að undanförnu og var hann til að mynda orðaður við Schalke í Þýskalandi, hans gamla lið.

Vonast er til að Holtby verði klár í slaginn fyrir leik Fulham gegn Southampton á morgun.




Tengdar fréttir

Holtby vill fleiri tækifæri

Lewis Holtby, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tottenham, segist gjarnan vilja fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu en hann hefur fengið.

Bara tveir spiluðu fleiri leiki fyrir Villas-Boas en Gylfi

André Villas-Boas var á mánudaginn rekinn sem knattspyrnustjóri Tottenham en hann stýrði liðinu í 80 leikjum í öllum keppnum síðan hann tók við sumarið 2012. Það er athyglisvert að sjá hvar Gylfi okkar Sigurðsson stendur þegar heildarárangur leikmanna undir stjórn Villas-Boas er skoðaður nánar.

Holtby og Capoue mögulega á förum

Svo gæti farið að miðjumennirnir Lewis Holtby og Etienne Capoue fari frá Tottenham áður en lokað verður fyrir félagaskipti um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×