Enski boltinn

Puncheon gerði langtímasamning við Palace

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Puncheon er formlega orðinn leikmaður Crystal Palace.
Puncheon er formlega orðinn leikmaður Crystal Palace. Vísir/Getty
Crystal Palace hefur í dag gengið frá kaupum á Jason Puncheon og markverðinum Wayne Hennessey.

Puncheon, sem er 27 ára gamall, kom til félagsins í sumar sem lánsmaður frá Southampton og hefur komið við sögu í 20 leikjum og skorað þrjú mörk - öll eftir áramót.

Hann gerir nú samning við Crystal Palace til 2018 en kaupverðið er ekki uppgefið. Hann var áður á mála hjá MK Dons, Plymouth, Millwall, Blackpool og QPR.

Crystal Palace keypti Hennessey frá C-deildarliði Wolves og verður gjaldgengur fyrir leik liðsins gegn Arsenal á sunnudag. Hennessey ólst upp hjá Manchester City en hefur spilað allan sinn atvinnumannaferil hjá Wolves.


Tengdar fréttir

Versta víti tímabilsins? | Myndband

Jason Puncheon, leikmaður nýliða Crystal Palace, tók hreint út sagt hörmulega vítaspyrnu í leik liðsins gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×