Enski boltinn

Versta víti tímabilsins? | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jason Puncheon, leikmaður nýliða Crystal Palace, tók hreint út sagt hörmulega vítaspyrnu í leik liðsins gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Vítið var dæmt eftir brot Moussa Dembele á Marouane Chamakh snemma leiks. Gestirnir fengu því gullið tækifæri til að taka forystuna á White Hart Lane, en allt kom fyrir ekki eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Puncheon vill örugglega gleyma þessu skoti fyrst en heppinn áhorfandi í efri röðum stúkunnar fer þó að minnsta kosti heim með skemmtilegan minjagrip.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×