Enski boltinn

Aron Einar byrjaði í sigri á Athletic Bilbao

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron Einar í leik með Cardiff.
Aron Einar í leik með Cardiff. Nordicphotos/Getty
Landsliðsfyrirliði Íslands, Aron Einar Gunnarsson, var í byrjunarliði Cardiff sem vann 2-1 sigur á  spænska liðinu Athletic Bilbao í æfingaleik í dag.

Aron Einar spilaði 67 mínútur fyrir nýliðana í ensku úrvalsdeildinni. Peter Whittingham og Frazier Campbell skoruðu mörkin fyrir heimamenn.

Aron Einar fór úr axlarlið í landsleik Íslands gegn Slóveníu í byrjun júní og hefur verið að jafna sig á meiðslunum í sumar. Miðjumaðurinn hefur verið í kapphlaupi við tímann að verða heill fyrir 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi.

Aron Einar sagði í viðtali við Fréttablaðið fyrir tveimur vikum að hann væri á áætlun. Hann stefndi á endurkomu þegar enska úrvalsdeildin hæfist en mestu máli skipti að flýta sér hægt.

Aron Einar var ekki valinn í íslenska landsliðið sem mætir Færeyingum í æfingaleik á miðvikudaginn vegna meiðsla sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×