Suarez fær ekki að æfa með samherjum sínum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2013 09:40 Suarez á æfingu með Liverpool. Nordicphotos/AFP
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir að Luis Suarez hafi sýnt félaginu algjöra óvirðingu með nýjasta útspili sínu. Rodgers hefur hafnað kröfu Suarez þess efnis að samkomulag hafi verið fyrir hendi að Úrúgvæinn mætti yfirgefa Anfield í sumar. Þá hafa Samtök atvinnuknattspyrnumanna í Englandi stigið fram og sagt að ekkert í samningi Suarez við Liverpool segi að hann megi yfirgefa félagið berist 40 milljóna punda boð í hann. Rodgers var grjótharður í afstöðu sinni í málinu að loknum sigri Liverpool á Vålerenga í æfingaleik í Noregi í gær. Hann sagði að Suarez yrði að biðjast opinberlega afsökunar áður en til greina kæmi að hann spilaði fyrir Liverpool á ný. „Það voru engin loforð, alls ekki og því hafa engin loforð verið brotin," sagði Rodgers. „Félagið átti fjölmörg samtöl við fulltrúa Suarez og því vita allir hvernig í pottinn er búið." Rodgers sagðist líta málið alvarlegum augum og ætla að bregðast harkalega við. „Félaginu hefur verið sýnd vanvirðing, félagi sem hefur gefið honum allt, gjörsamlega allt." Suarez hefur sagst vera tilbúinn að leggja fram formlega beiðni um að fara á sölulista í vikulok. Rodgers segir að Liverpool muni aðeins selja Suarez fyrir sanngjarna upphæð sem talin er vera hærri en 50 milljónir punda.
Enski boltinn Mest lesið „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Fleiri fréttir Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Sjá meira