Enski boltinn

Cardiff hefur áhuga á að fá Heiðar Helguson

Heiðar Helguson.
Heiðar Helguson. Nordic Photos / Getty Images
Samkvæmt frétt Daily Mail á Englandi eru líkur á því að Heiðar Helguson framherji enska úrvalsdeildarliðsins QPR yfirgefi félagið og leiki með Cardiff í næst efstu deild á næstu leiktíð. Heiðar, sem var kjörinn íþróttamaður ársins 2011 á Íslandi, er 34 ára gamall og Mark Hughes knattspyrnustjóri QPR virðist ekki hafa not fyrir Heiðar í ensku úrvalsdeildinni.

Malky Mackay knattspyrnustjóri Cardiff vill fá Heiðar til liðsins samkvæmt frétt Daily Mail en Aron Einar Gunnarsson leikur með liðinu sem tapaði gegn West Ham í umspili um laust sæti í úrvalsdeild í vor.

Craig Bellamy leikmaður Liverpool er á óskalistanum hjá Mackay ásamt miðjumanninum Ki Sung-yueng en Kóreumaðurinn hefur leikið með Celtic í Skotlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×