Reading á toppinn í ensku b-deildinni - Le Fondre hetjan gegn Leeds Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2012 12:45 Mynd/Nordic Photos/Getty
Adam Le Fondre kom inn á sem varamaður á 69. mínútu og tryggði Reading dýrmætan 2-0 sigur á tíu mönnum Leeds í ensku b-deildinni í fótbolta með því að skora tvö mörk á síðustu sex mínútum leiksins. Sigurinn kemur Reading jafnframt toppsætið í ensku b-deildinni því liðið er nú með tveggja stiga forskot á Southampton sem á reyndar leik inni á morgun. Reading-liðið hefur verið í miklum ham síðustu vikur en þetta var tólfti sigur liðsins í síðustu fjórtán deildarleikjum. Það hjálpaði liðinu þó vissulega mikið að spila manni fleiri í 77 mínútur. Zac Thompson hjá Leeds fékk rauða spjaldið strax á 13. mínútu fyrir glæfralega tæklingu á Jem Karacan en þetta var fyrsti leikur Thompson í byrjunarliðinu síðan að Neil Warnock tók við liðinu. Leeds gat líka þakkað fyrir að enda ekki hálfleikinn tveimur mönnum færri. Reading var miklu meira með boltann en það voru gestirnir í Leeds sem fengu bestu færin framan af leik. Ross McCormack átti skot stöng og lagði síðan upp dauðafæri fyrir Robert Snodgrass sem Snodgrass fór illa með. Sóknarþungi Reading jókst þegar á leið leikinn. Varamaðurinn Adam Le Fondre skoraði mark sem dæmt var af vegna rangstöðu en það leið ekki langur tími þar til að hann skoraði löglegt mark. Adam Le Fondre "kassaði" þá boltann inn af marklínunni á 84. mínútu eftir skallasendingu frá Hal Robson-Kanu. Þetta var í þriðja sinn í síðustu átta leikjum sem hann kemur inn á sem varamaður og skorar. Le Fondre bætti síðan við öðru marki á 90. mínútu þegar hann var réttur maður á réttum stað í markteignum eftir fyrirgjöf frá Jason Roberts.
Enski boltinn Tengdar fréttir Brynjar Björn: Gengi liðsins kemur ekki á óvart Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Reading, segir gengi liðsins í Championship-deildinni ekki koma sér á óvart. Reading er sem stendur í öðru sæti deildarinnar en liðið tekur á móti Leeds á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. 5. apríl 2012 15:45 Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira
Brynjar Björn: Gengi liðsins kemur ekki á óvart Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Reading, segir gengi liðsins í Championship-deildinni ekki koma sér á óvart. Reading er sem stendur í öðru sæti deildarinnar en liðið tekur á móti Leeds á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. 5. apríl 2012 15:45