Man. City marði stig gegn Sunderland | Arsenal missteig sig líka 31. mars 2012 00:01
Eftir að hafa verið nær meðvitundarlausir í 85 mínútur risu leikmenn Man. City upp á afturlappirnar og nældu í stig gegn Sunderland í leik sem virtist vera tapaður. Sunderland var komið í 1-3 forystu og nákvæmlega ekkert að gerast hjá City. Þá skoraði Mario Balotelli mark sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Það mark kveikti í City-liðinu og Kolarov jafnaði leikinn tveim mínútum síðar. Í báðum mörkum stóð markvörður Sunderland sem steinrunninn í markinu. Mögnuð endurkoma engu að síður. Man. Utd er því með tveggja stiga forskot í deildinni og getur aukið forskotið í fimm stig takist liðinu að leggja Blackburn af velli á mánudagskvöld. Leikmenn City voru arfaslakir í dag og ekki sjálfum sér líkir. Stemningin léleg og til marks um það var Mario Balotelli til í að slást við félaga sína er rifist var um hver ætti að taka aukaspyrnu í seinni hálfleik. Sunderland-liðið lék aftur á móti mjög vel. Larsson með tvö góð mörk og Bendtner skoraði glæsilegt skallamark og lagði upp þriðja markið fyrir Larsson. Það var þó dapurt hjá þeim að hleypa City aftur inn í leikinn. Chelsea vann síðan magnaðan sigur á Aston Villa á meðan Arsenal gaf eftir og tapaði stigum gegn QPR.Úrslit:QPR-Arsenal 2-1 1-0 Adel Taarabt (21.), 1-1 Theo Walcott (37.), 2-1 Samba Diakite (66.)Aston Villa-Chelsea 2-4 0-1 Daniel Sturridge (9.), 0-2 Branislav Ivanovic (50.), 1-2 James Collins (77.), 2-2 Eric Lichaj (80.), 2-3 Branislav Ivanovic (82.), 2-4 Fernando Torres (90.+2)Everton-WBA 2-0 1-0 Gareth McAuley, sjm (17.), 2-0 Victor Anichebe (67.)Fulham-Norwich 2-1 1-0 Clint Dempsey (1.), 0-2 Damien Duff (12.), 1-2 Aaron Wilbraham (77.)Man. City-Sunderland 3-3 0-1 Sebastian Larsson (31.), 1-1 Mario Balotelli, víti (42.), 1-2 Nicklas Bendtner (45.+4), 1-3 Sebastian Larsson (55.), 2-3 Mario Balotelli (85.), 3-3 Aleksandar Kolarov (87.)Wigan-Stoke 2-0 1-0 Antolin Alcaraz (55.), 2-0 Victor Moses (90.+3)Wolves-Bolton 2-3 1-0 Michael Knightley (53.), 1-1 Martin Petrov, víti (63.), 1-2 Marcos Alonso (80.), 1-3 Kevin Davies (83.), 2-3 Matt Jarvis (88.).Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Sjá meira