Redknapp er enn bjartsýnn þrátt fyrir mótlætið 22. mars 2012 11:15 Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, telur að liðið eigi enn góða möguleika á að ná þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar á ný. Getty Images / Nordic Photos
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, telur að liðið eigi enn góða möguleika á að ná þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar á ný. Erkifjendur Tottenham, lið Arsenal, þokaði sér upp í þriðja sætið í gær með 1-0 sigri á útivelli gegn Everton á meðan Tottenham rétt marði jafntefli gegn Stoke á heimavelli, 1-1. Þrjú efstu sætin í ensku úrvalsdeildinni tryggja sjálfkrafa rétt til þess að leika í Meistaradeild Evrópu – og það er því mikið í húfi. Redknapp sagði í gærkvöld að Arsenal gæti ekki farið að slaka á því margt ætti eftir að gerast á næstu vikum. Tottenham hefur verið í þriðja sæti deildarinnar undanfarna þrjá mánuði allt þar til í gærkvöldi. Rafael van der Vaart bjargaði stigi fyrir Tottenham þegar hann jafnaði metin rétt fyrir leikslok en fram að því stefndi í fjórða tapleik Tottenham í röð í deildinni. „Við getum enn endað fyrir ofan Arsenal á stigatöflunni. Þeir hjá Arsenal geta haldið að þetta sé búið en svo er ekki. Það er mikið eftir af mótinu og það á margt eftir að gerast. Ég held ekki að Arsenal eigi eftir að vinna alla leikina sem eftir er," sagði Redknapp. Hann neitaði því að leikmenn Tottenham hefðu ekki verið búnir að jafna sig á atvikinu sem átti sér stað í leik liðsins s.l. laugardag þegar Fabrice Muamba leikmaður Bolton fékk hjartaáfall. „Við vorum tilbúnir, við náðum ekki að senda boltann eins vel á milli manna og við erum vanir að gera. Stuðningsmenn okkar voru ákafir og þeir vildu sjá okkur sigra – sem er frábært. Við fórum að senda langar sendingar fram völlinn, sem er ekki það sem lið eiga að gera gegn Stoke," bætti Redknapp við. Arsenal hefur unnið upp 13 stiga forskotið sem Tottenham var með á liðið áður en liðin áttust við í grannaslagnum í febrúar.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira