Vermaelen tryggði Arsenal sigur í uppbótartíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2012 19:45 Thomas Vermaelen fagnar sigurmarki Arsenal í kvöld. Mynd/AP
Sigurganga Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í kvöld þegar liðið vann 2-1 sigur á Newcastle í einvígi liðanna í fjórða og sjötta sæti deildarinnar. Það stefndi allt í jafntefli þegar belgíski miðvörðurinn Thomas Vermaelen skoraði sigurmarkið í uppbótartíma en þetta var fimmti deildarsigur Arsenal í röð. Arsenal var mun betra liðið í þessum leik en það leit út fyrir að Newcastle-menn væru að halda út og fara með stig með sér norður til Newcastle. Arsenal náði hinsvegar að skora dramatískt sigurmark á fjórðu mínútu í uppbótartíma og nágrannar þeirra í Norður London (Tottenham) eru nú aðeins einu stigi á undan þeim. Fyrstu tvö mörk leiksins komu með innan við mínútu millibili snemma í leiknum. Hatem Ben Arfa kom Newcastle í 1-0 á 14. mínútu eftir laglega sókn og sendingu frá Gabriel Obertan. Ben Arfa fór þá illa með Kieran Gibbs og skoraði með góðu skoti úr teignum. Robin van Persie var ekki lengi að jafna leikinn því hann skoraði í næstu sókn. Van Persie fékk þá boltann frá Theo Walcott, plataði Mike Williamson og skoraði með óverjandi skoti. Arsenal fékk nokkur mjög góð færi til að tryggja sér sigur á lokamínútum leiksins en það var ekki fyrr en Belginn Thomas Vermaelen skellti sér fram í sóknina í lokin og skoraði dýrmætt sigurmark eftir fyrirgjöf frá Theo Walcott.
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Fleiri fréttir Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Sjá meira