Muamba liggur enn þungt haldinn á gjörgæslu 19. mars 2012 10:15 Fabrice Muamba leikmaður Bolton liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hjarta hans hætti að slá í bikarleiknum gegn Tottenham á laugardag. Getty Images / Nordic Photos
Fabrice Muamba leikmaður Bolton liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hjarta hans hætti að slá í bikarleiknum gegn Tottenham á laugardag. Ástand hins 23 ára gamla Muamba er enn alvarlegt og er hann í öndunarvél á sjúkrahúsi í London. Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins íhuga að draga lið sitt úr ensku bikarkeppninni. Samkvæmt heimildum Daily Mirror eru forráðamenn Bolton í vafa um hvort það eigi að leggja það á leikmenn liðsins að fara til London á ný og leika gegn Tottenham í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Muamba missti meðvitund og hneig niður á leikvöllinn rétt undir lok fyrri hálfleiks. Endurlífgunartilraunir hófust þegar í stað og var hann fluttur á sjúkrahús þar sem læknum tókst að fá hjarta hans til þess að slá á ný. Forráðamenn Bolton hafa ákveðið að senda alla leikmenn liðsins í ítarlega hjartaskoðun í kjölfar atburðarins. Muamba fór í slíka skoðun ásamt öllum leikmönnum Bolton í upphafi keppnistímabilsins. Engar vísbendingar um hjartagalla komu út úr þeirri skoðun hjá Muamba. Stuðningsmenn og leikmenn flestra liða á Englandi hafa sent kveðju með einum eða öðrum hætti til Muamba sem hefur leikið með enska U21- árs landsliðinu. Leikmenn Real Madrid á Spáni sendu einnig kveðju til leikmannsins í gær þar sem þeir hituðu upp í treyjum sem voru merktar honum. Næsti deildarleikur Bolton er um næstu helgi gegn Blackburn. Og eru líkur á því að þeim leik verði einnig frestað. Ef ekkert verður af bikarleiknum mun Tottenham leika í undanúrslitum gegn Chelsea á Wembley.
Enski boltinn Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira