Enski boltinn

Morten Gamst tryggði Blackburn sigur á Aston Villa

Elvar Geir Magnússon skrifar

Blackburn vann Aston Villa 2-0 á Ewood Park í leik sem var að ljúka. Norðmaðurinn Morten Gamst Pedersen skoraði bæði mörkin.

Fyrra markið kom rétt fyrir hálfleik beint úr aukaspyrnu en Brad Friedel í marki Aston Villa átti að gera betur. Seinna markið skoraði Morten Gamst með viðstöðulausu skoti af stuttu færi.

Eftir þessi úrslit er hið óútreiknanlega lið Blackburn í ellefta sæti en Aston Villa hefur stigi minna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×