Íslenskur sérfræðingur: Rússanna bíður erfitt verk 11. apríl 2010 19:10
Rannsóknarnefnd flugslysa í Rússlandi bíður erfitt og viðkvæmt verkefni segir íslenskur flugslysasérfræðingur. Vladimir Pútin ætlar persónulega að fylgjast með rannsókninni. Pútin sagði í dag nauðsynlegt að tryggja að allt verði gert til þess að komast að því hvað olli flugslysinu í gærmorgun, á sem stystum tíma. Flugritar Tupalov vélarinnar sem fórst með Kacynski og föruneyti hafa þegar fundist og rannsakendur eru þegar byrjaðir að greina hann. Starfsmaður Rannsóknarnefndar flugslysa hér á landi segir að nokkrar vikur séu þar til skýr svör fáist um orsakir slyssins. „Síðan verða flugupptökur og samsamskipti við flugturna yfirfarið. Síðan eru viðtöl við vitni og þá sem geta gefið upplýsingar um slysið. Síðast en ekki síst er það vettvangurinn sjálfur en það tekur væntanlega einhverja daga eða vikur að skoða ummerki," segir Þorkell Ágústsson, forstöðumaður og rannsóknarstjóri Rannsóknarnefndar flugslysa.Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur. Mynd/Stefán Karlsson.Frumniðurstöður gætu þó legið fyrir innan skamms. Ljóst sé þó að rannasakendur eru undir mikilli pressu enda er flugslysið í gær nánast án fordæma. „Maður á mjög erfitt með að ímynda sér að svona nokkuð hafi gerst á friðartímum. Að æðstu embættismenn ríkis farist allir í slysi af þessu tagi," segir Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur. Eins og fram hefur komið var forsetinn á leiðinni til minningarathafnir í Katyn skógi þar sem meira en 20 þúsund pólskir liðsforingjar voru teknir af lífi að skipan Jósef Stalín. „Pólska þjóðin hefur síðustu aldir þurft að þola ótrúlegar hörmungar. Saga okkar er dans á rósum miðað við það. Það að þetta stórslys verði í þessu samhengi setur auðvitað mjög sérstakan svip á þetta," segir Guðni.
Tengdar fréttir Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins. 10. apríl 2010 14:57 Fullt út úr dyrum í minningarathöfn Minningarathöfn í Kristskirkju á Landakoti um forsetann og alla þá sem fórust í flugslysinu í Rússlandi í morgun er nýlokið. Í slysinu fórust forseti landsins og fjölmargir háttsettir embættismenn. Fullt vart út úr dyrum í Kristskirkju en meðal þeirra sem sóttu athöfnina voru Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 10. apríl 2010 17:29 Pútín vakir yfir rannsókninni Vladímir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur lýst því yfir að hann muni persónulega fylgjast með rannsókn á flugslysinu þegar forseti Póllands og fylgdarlið hans fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í gær. Flest bendir til að mistök flugmanna hafi orsakað slysið þegar Lech Kaczynski, forseti Póllands, eiginkona hans og tugir æðstu embættismanna landsins fórust við Smolensk í Rússlandi í gærmorgun. 11. apríl 2010 09:12 Össur um forseta Póllands: Hlýja hans gagnvart Íslandi var ótvíræð „Þetta er ógurlega sorglegt og ég fyllist samúð með pólsku þjóðinni að missa forseta sinn með þessu hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um Lech Kaczynski, forseta Póllands, sem fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í morgun. Talið er að 96 manns hafi farist í slysinu, þar á meðal forsetafrúin, fjölmargir háttsettir embættismenn og æðstu ráðamenn pólska hersins. 10. apríl 2010 16:32 Minningarathöfn vegna flugslyssins Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust. 10. apríl 2010 14:27 Fyrirskipar viku þjóðarsorg í Póllandi Forseti pólska þingsins hefur tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eins og stjórnarskrá Póllands gerir ráð fyrir. Hann hefur fyrirskipað viku þjóðarsorg í landinu vegna flugslyssins skammt frá Smolensk í vesturhluta Rússlands, þar sem Lech Kaczynski forseti landsins og margir æðstu embættismenn landsins fórust. 10. apríl 2010 17:23 Minnast fórnarlambanna - Lík forsetans flutt til Póllands Pólverjar minntust forseta síns og þeirra tuga manna sem fórust með honum í flugslysinu í Rússlandi í gær, með tveggja mínútna þögn í morgun. Kennsl hafa verið borin á lík forsetans sem líklega verður flutt til Póllands í dag. 11. apríl 2010 12:00 Forseti Póllands fórst í flugslysi Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð. 10. apríl 2010 09:06 Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. 10. apríl 2010 11:37 Látlaus viðhöfn á flugvellinum í Varsjá Lík Lech Kaczynski forseta Póllands var flutt með pólskri herflugvél til heimlandsins í dag. Látlaus viðhöfn var á flugvellinum í Varsjá, höfuðborg Póllands, þegar hermenn báru kistu forsetans út úr flugvélinni. Helstu ráðamenn landsins voru viðstaddir og hermenn stóðu heiðursvörð. Síðan var ekið með kistuna frá flugvellinum í gegnum miðborgina að forsetahöllinni. 11. apríl 2010 14:59 Jóhanna sendi samúðarkveðjur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust. 10. apríl 2010 15:54 Seðlabankastjóri sendi samúðarkveðjur til Póllands Már Guðmundsson seðlabankastjóri sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðarkveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í hinu hörmulega flugslysi í Rússlandi í dag. 10. apríl 2010 17:32 Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira
Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins. 10. apríl 2010 14:57
Fullt út úr dyrum í minningarathöfn Minningarathöfn í Kristskirkju á Landakoti um forsetann og alla þá sem fórust í flugslysinu í Rússlandi í morgun er nýlokið. Í slysinu fórust forseti landsins og fjölmargir háttsettir embættismenn. Fullt vart út úr dyrum í Kristskirkju en meðal þeirra sem sóttu athöfnina voru Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 10. apríl 2010 17:29
Pútín vakir yfir rannsókninni Vladímir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur lýst því yfir að hann muni persónulega fylgjast með rannsókn á flugslysinu þegar forseti Póllands og fylgdarlið hans fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í gær. Flest bendir til að mistök flugmanna hafi orsakað slysið þegar Lech Kaczynski, forseti Póllands, eiginkona hans og tugir æðstu embættismanna landsins fórust við Smolensk í Rússlandi í gærmorgun. 11. apríl 2010 09:12
Össur um forseta Póllands: Hlýja hans gagnvart Íslandi var ótvíræð „Þetta er ógurlega sorglegt og ég fyllist samúð með pólsku þjóðinni að missa forseta sinn með þessu hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um Lech Kaczynski, forseta Póllands, sem fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í morgun. Talið er að 96 manns hafi farist í slysinu, þar á meðal forsetafrúin, fjölmargir háttsettir embættismenn og æðstu ráðamenn pólska hersins. 10. apríl 2010 16:32
Minningarathöfn vegna flugslyssins Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust. 10. apríl 2010 14:27
Fyrirskipar viku þjóðarsorg í Póllandi Forseti pólska þingsins hefur tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eins og stjórnarskrá Póllands gerir ráð fyrir. Hann hefur fyrirskipað viku þjóðarsorg í landinu vegna flugslyssins skammt frá Smolensk í vesturhluta Rússlands, þar sem Lech Kaczynski forseti landsins og margir æðstu embættismenn landsins fórust. 10. apríl 2010 17:23
Minnast fórnarlambanna - Lík forsetans flutt til Póllands Pólverjar minntust forseta síns og þeirra tuga manna sem fórust með honum í flugslysinu í Rússlandi í gær, með tveggja mínútna þögn í morgun. Kennsl hafa verið borin á lík forsetans sem líklega verður flutt til Póllands í dag. 11. apríl 2010 12:00
Forseti Póllands fórst í flugslysi Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð. 10. apríl 2010 09:06
Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. 10. apríl 2010 11:37
Látlaus viðhöfn á flugvellinum í Varsjá Lík Lech Kaczynski forseta Póllands var flutt með pólskri herflugvél til heimlandsins í dag. Látlaus viðhöfn var á flugvellinum í Varsjá, höfuðborg Póllands, þegar hermenn báru kistu forsetans út úr flugvélinni. Helstu ráðamenn landsins voru viðstaddir og hermenn stóðu heiðursvörð. Síðan var ekið með kistuna frá flugvellinum í gegnum miðborgina að forsetahöllinni. 11. apríl 2010 14:59
Jóhanna sendi samúðarkveðjur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust. 10. apríl 2010 15:54
Seðlabankastjóri sendi samúðarkveðjur til Póllands Már Guðmundsson seðlabankastjóri sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðarkveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í hinu hörmulega flugslysi í Rússlandi í dag. 10. apríl 2010 17:32