Innlent

Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið.

130 voru um borð í flugvélinn sem í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð.

„Á þessum sorgartímum er hugur okkar með fjölskyldum og ættingjum þeirra sem létust og Pólverjum öllum, ekki síst þeim sem hafa deilt kjörum með Íslendingum um áraraðir," segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta. „Vinátta Pólverja og Íslendinga hefur hvílt á traustum grunni eins og Lech Kaczyński forseti sýndi í verki með eftirminnilegum hætti á undanförnum misserum. Hans mun ætíð verða minnst með virðingu og þökk á Íslandi."


Tengdar fréttir

Forseti Póllands fórst í flugslysi

Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×