Innlent

Fullt út úr dyrum í minningarathöfn

Minningarathöfn í Kristskirkju á Landakoti um forsetann og alla þá sem fórust í flugslysinu í Rússlandi í morgun er nýlokið. Í slysinu fórust forseti landsins og fjölmargir háttsettir embættismenn. Fullt vart út úr dyrum í Kristskirkju en meðal þeirra sem sóttu athöfnina voru Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.

Þúsundir Pólverja búa á Íslandi og sóttu margir þeirra minningarathöfnina. Ólafur Ragnar Grímsson ,forseti Íslands, sendi starfandi forseta landsins samúðarkveðjur íslensku þjóðarinnar í morgun.

Í dag sendi forsætisráðherra svo samúðarkveðjur til Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands. Jóhanna lýsir yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss. Hugur Íslendinga sé hjá þeim sem létust, aðstandendum þeirra og pólsku þjóðinni allri á þessum sorgartíma, þegar þeir minnast einnig annars hörmulegs atburðar úr sögunni.Sterk tengsl séu á milli íslensku og pólsku þjóðarinnar, mikil og einlæg vinátta, sem geri þennan harmleik sárari en ella.






Tengdar fréttir

Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans

Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins.

Sendi starfandi seðlabankastjóra Póllands bréf með samúðarkveðjum

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðarkveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í hinu hörmulega flugslysi í Rússlandi í dag.

Össur um forseta Póllands: Hlýja hans gagnvart Íslandi var ótvíræð

„Þetta er ógurlega sorglegt og ég fyllist samúð með pólsku þjóðinni að missa forseta sinn með þessu hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um Lech Kaczynski, forseta Póllands, sem fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í morgun. Talið er að 96 manns hafi farist í slysinu, þar á meðal forsetafrúin, fjölmargir háttsettir embættismenn og æðstu ráðamenn pólska hersins.

Minningarathöfn vegna flugslyssins

Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust.

Fyrirskipar viku þjóðarsorg í Póllandi

Forseti pólska þingsins hefur tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eins og stjórnarskrá Póllands gerir ráð fyrir. Hann hefur fyrirskipað viku þjóðarsorg í landinu vegna flugslyssins skammt frá Smolensk í vesturhluta Rússlands, þar sem Lech Kaczynski forseti landsins og margir æðstu embættismenn landsins fórust.

Forseti Póllands fórst í flugslysi

Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð.

Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið.

Jóhanna sendi samúðarkveðjur

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×