Lucas: Ánægður að ég fór ekki í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2010 16:30 Nordic Photos / Getty Images
Brasilíumaðurinn Lucas segist afar ánægður með þá ákvörðun Liverpool að selja hann ekki nú í sumar. Lucas hefur verið lykilmaður í liði Roy Hodgson í haust en Liverpool hefur þó ekki gengið neitt sérstaklega vel og er sem stendur í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Honum var tilkynnt í lok síðasta tímabils að til greina kæmi að selja hann ef félagið fengi ásættanlegt tilboð fyrir hann. Lucas var orðaður við Juventus, Sevilla og Santos en ekkert varð af sölunni. Nú hafa fregnir borist af því að Lucas verði mögulega boðinn nýr og betri samningur við Liverpool. „Þegar þeir tilkynntu mér þetta sagði ég að ég myndi reyna að finna mér nýtt félag en að ég myndi ekki sætta mig við hvað sem er," sagði Lucas við enska fjölmiðla. „Ég taldi að ég gæti verið hjá góðu félagi þar sem ég hafði verið hjá Liverpool í þrjú ár. En ég sagði líka að ég væri líka reiðubúinn að berjast fyrir mínu sæti í liðinu. Ég myndi æfa og vera fagmannlegur. Það var ekki auðvelt en stundum þarf maður að halda ró sinni." „Það bárust nokkur tilboð en Liverpool tók þeim ekki. Ég er ánægður með að ég er enn hjá félaginu því ég hef verið að spila vel og hjálpa mínu liði. Ég er mikilvægari leikmaður í dag en ég var fyrir nokkrum mánuðum síðan."
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira