Þurftu að borga fyrirfram á Pizza Hut Elvar Geir Magnússon skrifar 6. desember 2010 20:00 Anton Robinson.
Hópur hörundsdökkra leikmanna hjá enska 2. deildarliðinu Bournemouth var beðinn um að borga máltíð sína fyrirfram á veitingastaðnum Pizza Hut þar í bæ. „Það er útaf því hvernig þið lítið út," sagði starfsmaður staðarins. Venjan er hjá Pizza Hut að greitt er fyrir matinn eftir máltíðina. Eddie Mitchell, stjórnarformaður Bournemouth, er ekki sáttur við framkomuna í garð leikmanna sinna og segir sláandi hvernig öðruvísi er komið fram við fólk af öðrum kynþáttum. Pizza Hut baðst í dag opinberlega afsökunar á atvikinu en neitaði því að þetta hafi haft eitthvað með kynþátt mannana að gera. „Við pöntuðum okkar mat og svo kemur framkvæmdastjórinn við borðið okkar og spyr hvort við getum borgað fyrirfram. Við spurðum hvort það væri venjan og þá neitaði hann því," segir miðjumaðurinn Anton Robinson sem var einn af fimm leikmönnum sem voru beðnir um að borga fyrirfram. Þegar leikmennirnir spurðu hvers vegna þeir væru beðnir um þetta svaraði framkvæmdastjóri staðarins: „Það er útaf því hvernig þið lítið út." „Við áttuðum okkur strax á því sem var í gangi. Hópur af hvítum unglingum kom inn á staðinn strax á eftir okkur og þurfti ekki að borga fyrir sína máltíð fyrirfram. Eini hlutirinn sem var öðruvísi var húðliturinn," segir Robinson. Leikmennirnir tilkynntu að þeir myndu glaðir borga reikninginn sinn þegar þeir hefðu lokið við máltíðina. Fengu þeir þá þau skilaboð að ef þeir myndu ekki greiða fyrirfram yrði hringt á lögregluna og þeim fylgt útaf staðnum. „Við vorum allir snyrtilega klæddir enda meðvitaðir um það að þegar við förum saman út að borða erum við andlit liðsins. Við vitum að fólk þekkir okkur og við verðum að hegða okkur," segir Robinson. Á endanum var lögreglan kölluð á staðinn og leikmennirnir fimm beðnir um að yfirgefa staðinn sem þeir gerðu.
Enski boltinn Mest lesið Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Íslenski boltinn Hafþór Júlíus keppir á „Steraleikunum“ Sport Uppgjörið: Haukar - Keflavík 94-73 | Meistararnir upp að hlið Keflvíkinga Körfubolti Tvenna frá Sesko dugði United skammt Enski boltinn Magnaður sigur Newcastle eftir tvö í uppbótartíma Enski boltinn Kvaddi með fullkomnum hætti og kvalir Spurs halda áfram Enski boltinn Alfreð hættur hjá Breiðabliki Íslenski boltinn Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Guardiola pirraður: „Við vorum frábærir í vörn og sókn“ Enski boltinn Keegan með krabbamein Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola pirraður: „Við vorum frábærir í vörn og sókn“ Magnaður sigur Newcastle eftir tvö í uppbótartíma Tvenna frá Sesko dugði United skammt Kvaddi með fullkomnum hætti og kvalir Spurs halda áfram Nýi stjórinn sá tíu Chelsea-menn tapa Mitoma bætti hag Arsenal á toppnum Keegan með krabbamein Fjórir snúa aftur hjá Man. Utd undir stjórn Fletchers „Mér finnst mjög erfitt að heyra þetta“ Verdens Gang: Solskjær í samningaviðræðum við Man. United Stjóri Palace heimspekilegur í svörum um sölu á Guéhi til Man. City Sjáðu dóminn sem færði Forest sigur og West Ham kallaði brandara Fletcher fékk blessun frá Ferguson Aðeins fimmti svarti Englendingurinn í sögunni Segir rugl að ætla að ræða United Enn í útlegð en hvert getur hann farið? Síðasti naglinn í kistu Nuno? Solskjær í viðræður við United Áfall fyrir City: Dias frá í allt að sex vikur Úrvalslið Alberts sneri baki í hann Áttunda félagið í B-deildinni sem skiptir um stjóra í vetur Gvardiol þarf að fara í aðgerð og City horfir til Guéhi Greindi sjálfur frá því að hann tæki við Chelsea Neville segir United að hætta tilraunamennskunni Solskjær hefur lýst yfir áhuga á að snúa aftur til Manchester United Draumaráðning Hjörvars sem brosir breitt eftir tíðindi dagsins Telur að Arteta myndi íhuga að taka við Manchester United Annar framherji til West Ham Logi Bergmann náði í 77 stig þrátt fyrir líklegt Fantasy-slys Segir að leikmenn eins og Rice séu þeir verðmætustu í boltanum Sjá meira