Stóri Sam biður stuðningsmenn afsökunar Elvar Geir Magnússon skrifar 28. nóvember 2010 21:30 Stóri Sam Allardyce.
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Blackburn, hefur beðið stuðningsmenn félagsins sem horfðu á leikinn gegn Manchester United í gær afsökunar. United vann leikinn 7-1 en Stóri Sam vonast að leikmenn sínir þjappi sér saman og snúi blaðinu við um næstu helgi þegar liðið leikur gegn Wolves. „Ég vil biðja þá stuðningsmenn Blackburn sem ferðuðust til að horfa á þennan leik afsökunar. Það sem þeir urðu vitni að var ekki gott. Þessi varnarleikur sem við sýndum var alls ekki nægilega góður til að hægt sé að keppa við lið með sömu gæði og Manchester United," sagði Allardyce. „Þeir náðu á endanum að slátra okkur. Það var ekki eitthvað sem við vildum eða bjuggumst við en við þurfum að horfast í augu við staðreyndir. Það sem skiptir mestu máli er hvernig við bregðumst við þessum úrslitum. Sannleikurinn er sá að Manchester United er með betri leikmenn en við." „Þeir eru hundruðum milljóna punda á undan okkur og miðað við það ættum við ekki að eiga neinn möguleika á sigri. Til að geta átt möguleika verðum við að vera samstilltir og skipulagðir. Stundum tekst það en í þetta skipti gerðist það svo sannarlega ekki." „Við viljum gera betur fyrir stuðningsmennina. Vonandi náum við því í næstu viku þegar við leikum gegn Úlfunum."
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Sjá meira