Leeds í 2. sætið eftir sigur á QPR - Aron Einar fékk rautt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. desember 2010 17:10 Aron Einar Gunnarsson í leik með Coventry. Nordic Photos / Getty Images
Leeds hafði betur gegn QPR í toppslag ensku B-deildarinnar í dag en þetta var annað tap síðarnefnda liðsins í röð. Leiknum lauk með 2-0 sigri Leeds en QPR var taplaust í deildinni þar til um síðustu helgi. QPR er engu að síður á toppnum með 41 stig en Leeds er komið upp í 38 stig. Cardiff og Swansea koma svo næst með 37 stig en fyrrnefnda liðið á leik til góða. Swansea tapaði í dag fyrir Sheffield United, 1-0. Alls fóru sex leikir fram í deildinni í dag, þrátt fyrir snjókomuna í Bretlandi sem gerði það að verkum að sjö af níu leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni var frestað. Aðeins fjórum var frestað í ensku B-deildinni. Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður á 75. mínútu fyrir Rob Hulse sem hefur haldið Heiðari út úr liðinu síðustu vikurnar. Max Gradel skoraði bæði mörk Leeds í dag en sigur liðsins ætti að kæta fjölmarga stuðningsmenn liðsins hér á landi. Þetta gamla stórveldi hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár en nú er aftur farið að birta til. Aron Einar Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið er Coventry tapaði fyrir Norwich í dag, 2-1. Hann fékk beint rautt fyrir tæklingu á Henri Lansbury, leikmann Norwich, eftir 35 mínútna leik. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru ekki í leikmannahópi Reading sem vann 2-1 sigur á Derby í dag. Úrslit dagsins: Coventry - Norwich 1-2 Derby - Reading 1-2 Hull - Bristol City 2-0 Leeds - QPR 2-0 Nottingham Forest - Crystal Palace 3-0 Sheffield United - Swansea 1-0
Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira