Innlent

Annþór í fjögurra ára fangelsi vegna hraðsendingarmáls

Annþór Kristján Karlsson var í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygli í svokölluðu hraðsendingarmáli. Þrír samverkamenn hans voru einnig sakfelldir samkvæmt ákæru.

Samkvæmt ákæru var Annþóri og félögum hans, Tómasi Kristjánssyni og bræðrunum Ara og Jóhannesi Páli Gunnarssonum, gefið að sök að hafa staðið saman að innflutningi á rúmlega 4,6 kílóum af amfetamíni og nærri 600 grömmum af kókaíni frá Þýskalandi. Efnin voru flutt til landsins með hraðsendingarfyrirtækinu UPS, þar sem Tómas starfaði, og fundu lögregla og tollur þau 15. nóvember í bifreið fyrirtækisins fyrir utan húsnæði þess á Keflavíkurflugvelli.

Við þingfestingu neitaði Annþór sök og sömuleiðis Tómas en bræðurnir viðurkenndu aðild að málinu. Hlaut Tómas tveggja og hálfs árs dóm en bræðurnir eitt og hálft ár hvor. Tómas hefur þegar ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Hvorki Annþór né lögmaður hans hafa séð dóminn og verður ákvörðun um áfrýjun ekki tekin fyrr en eftir helgi.

Annþór var einnig ákærður fyrir vörslu 90 gramma af amfetamíni sem lögregla fann á heimili hans þegar hann var handtekinn í tengslum við hraðsendingarmálið. Hann var sýknaður af þeirri ákæru þar sem annar maður gaf sig fram og sagðist eigandi þeirra. Sá verður ákærður fyrir vörslu efnanna.


Tengdar fréttir

Bræður flæktir í fíkniefnasmygl

Þriðji maðurinn sem situr nú í gæsluvarðhaldi, grunaður um aðild að smygli á um fimm kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni, er samkvæmt heimildum Vísis yngri bróðir starfsmanns fjármálaráðuneytisins sem einnig er í varðhaldi.

Frásögn af flótta Annþórs vakti kátínu í réttarsal

Annþór Kristján Karlsson bar vitni í hraðsendingarmálinu í dag en aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Annþór neitar sök en hann er ákærður fyrir að fjármagna og skipuleggja smygl á miklu magni fíkniefna til landsins.

Einn hinna grunuðu vann hjá hraðsendingafyrirtækinu sem flutti dópið

Einn þeirra þriggja sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa smyglað inn 5 kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni með hraðsendingu var starfsmaður fyrirtækisins sem mennirnir notuðu til að koma efnunum til landsins. Rannsókn lögreglu hefur verið afar viðamikil en talið er að málið tengist stórum smyglhring.

Annþór var á reynslulausn og er á leið í grjótið á ný

AnnÞór Kristján Karlsson sem handtekinn var í gær grunaður um aðild sína að smygli á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni, var á reynslulausn vegna eldri brota og þarf nú væntanlega að sitja það af sér. Hann hlaut þriggja ára dóm fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann barði rúmliggjandi mann til óbóta með kylfu.

UPS-maður áfram í gæsluvarðhaldi og Annþór í afplánun

Gæsluvarðhald yfir Tómasi Kristjánssyni sem handtekinn var í tengslum við svokallað hraðsendingarmál var framlengt til 18. apríl í dag. Hann sat í gæsluvarðhaldi sem rann út í dag en var framlengt á grundvelli almannahagsmuna.

UPS-smyglið staðið yfir síðan 2005

Í gögnum sem lögregla hefur lagt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Hæstarétt kemur fram að grunur leiki á að hraðsendingarsmyglið sem upp komst á Keflavíkurflugvelli í nóvember hafi staðið yfir síðan á vormánuðum 2005.

Enn fást engin svör um flótta Annþórs

Enn bólar ekkert á svörum við því hvað fór úrskeiðis þegar Annþór Kristján Karlsson flúði úr haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðasta föstudag.

Hafði unnið hjá UPS í þrjú ár

“Ég lít þetta mál afar alvarlegum augum og mun fylgjast grannt með rannsókn lögreglu eftir því sem henni miðar áfram. En á meðan henni er ekki lokið get ég ekki tjáð mig frekar,” segir Sigþór Skúlason, framkvæmdastjóri UPS á Íslandi, en starfsmaður fyrirtækisins er einn þeirra þriggja sem nú sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um hafa reynt að smygla 5 kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni til landsins.

Annþór fannst í Mosfellsbæ

Annþór Kristján Karlsson sem strauk úr fangaklefa af lögreglustöðini við Hverfisgötu fannst í íbúðarhúsnæði í Mosfellsbæ nú fyrir skömmu.

Annþór handrukkari handtekinn í tengslum við hraðsendingasmygl

Lögreglan handtók nú síðdegis handrukkarann alkunna Annþór Kristján Karlsson fyrir utan Leifsstöð í tengslum við smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni. Bræðurnir Jóhannes Páll og Ari Gunnarssynir og Tómas Kristjánsson, sem starfaði hjá hraðsendingafyrirtækinu UPS, hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins frá því í lok síðustu viku.

Rannsókn á flótta Annþórs lokið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á því hvað fór úrskeiðis þegar Annþór Kristján Karlsson slapp úr fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötu. Stefán Eiríksson lögreglustjóri hefur sent Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra greinargerð um málið.

Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir bræðrum

Í dag var tekin fyrir í Héraðsdómi Reyjaness krafa lögreglunnar á Suðurnesjum um að tveir bræður, Jóhannes Páll og Ari Sigurðarsynir, verði úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald.

Grunaðir smyglarar áfram í gæsluvarðhaldi

Tveir menn voru í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að smygli á rúmlega fimm kílóum af amfetamíni og kókaíni.

Tveir félagar Annþórs handteknir - grunaðir um aðstoð við flóttann

Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á flótta Annþórs Kristjáns Karlssonar úr fangageymslu í morgun. Þeir eru grunaðir um að hafa aðstoðað Annþór. Alls gerði lögregla húsleit á tólf stöðum í dag í leit sinni að Annþóri.

Rannsókn á flótta Annþórs stendur enn yfir

Að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, stendur rannsókn á því hvað fór úrskeiðis þegar Annþór Kristján Karlsson strauk úr gæsluvarðhaldi á föstudaginn síðasta ennþá yfir. Engrar yfirlýsingar er að vænta um málið í dag.

Annþór neitar sök í hraðsendingarmálinu

Hraðsendingarmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ákæran er sett fram í tveimur liðum, annarsvegar er sameiginlegur kafli fyrir þá fjóra sem ákærðir eru og hins vegar eru sér kaflar fyrir hvern og einn hinna ákærðu. Annþór Kristján Karlsson neitaði í morgun sök í báðum liðum. Ari Gunnarsson, játar í báðum liðum og Jóhannes Páll bróðir hans viðurkennir að hafa miðlað upplýsingum. Hann segist hins vegar ekki hafa komið að skipulagningu smyglsins. Tómas Kristjánsson neitar sök í báðum liðum líkt og Annþór.

Annþór í þriggja vikna gæsluvarðhald

Annþór Kristján Karlsson var í kvöld úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness. Annþór flúði frá Lögreglustöðinni á Hverfisgötu í morgun en náðist um klukkan 18 í húsi Mosfellsbæ.

Annþór hoppaði niður af annarri hæð og strauk

„Hann braut öryggisgler í glugga á ganginum og hoppaði niður af annarri hæð,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn um flótta handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar. Annþór átti að koma fyrir dómara seinna í dag þar sem gæsluvarðhald yfir honum rennur út í dag.

Bræðurnir segja Annþór hafa skipulagt smyglið

Ari Gunnarsson annar bræðranna í Hraðsendingarmálinu svokalla, brast í grát þegar hann bar vitni í málinu í dag. Honum og þremur öðrum er gefið að sök stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 4,6 kílóum á amfetamíni og nærri 600 gömmum af kókaíni frá Þýskalandi. Ari og bróðir hans, Jóhannes, bera báðir að Annþór Kristján Karlsson hafi verið skipuleggjandi smyglsins og sá sem fjármagnaði fíkniefnakaupin. Þeir bræður segjast aðeins hafa verið milligöngumenn á milli Annþórs og Tómasar Kristjánssonar sem starfaði hjá hraðsendingarfyrirtækinu UPS en efnin voru send með hraðsendingu á vegum þess.

Annþór í gæsluvarðhald til 15. febrúar

Annþór Kristján Karlsson var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. febrúar fí tengslum við rannsókn á svokölluðu hraðsendingarsmyglmáli.

Annþór fannst inni í fataskáp

Annþór Kristján Karlsson fannst inni í fataskáp í íbúðarhúsnæði í Mosfellsbæ þegar hann var handtekinn um nú fyrir skömmu eins og Vísir greindi frá kl. 18. Annþór kom fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness og var úskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Annþór var laus í tæpa tólf tíma.

Segist einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn

Annþór Kristján Karlsson sem sat í einangrun vegna svokallaðs UPS smyglmáls neitar að hafa komið nálægt innflutningi á fíkniefnunum. Samkvæmt heimildum Vísis segist hann við yfirheyrslur einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn sem handtekinn var vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×