Annþór neitar sök í hraðsendingarmálinu 29. maí 2008 09:50 Annþór Kristján Karlsson.
Hraðsendingarmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ákæran er sett fram í tveimur liðum, annarsvegar er sameiginlegur kafli fyrir þá fjóra sem ákærðir eru og hins vegar eru sér kaflar fyrir hvern og einn hinna ákærðu. Annþór Kristján Karlsson neitaði í morgun sök í báðum liðum. Ari Gunnarsson, játar í báðum liðum og Jóhannes Páll bróðir hans viðurkennir að hafa miðlað upplýsingum. Hann segist hins vegar ekki hafa komið að skipulagningu smyglsins. Tómas Kristjánsson neitar sök í báðum liðum líkt og Annþór. Samkvæmt ákæru er mönnunum sameiginlega gefið að sök stórfellt fíkniefnabrot á síðasta ári með því að hafa staðið saman að innflutningi á rúmlega 4,6 kílóum af amfetamíni og nærri 600 grömmum af kókaíni frá Þýskalandi. Efnin voru flutt til landsins með hraðsendingarfyrirtækinu UPS, þar sem Tómas starfaði, og fundu lögregla og tollur þau 15. nóvember í bifreið fyrirtækisins fyrir utan húsnæði þess á Keflavíkurflugvelli. Annþór Kristján Karlsson er ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um smyglið með Ara með því að hafa látið senda fíkniefnin frá Þýskalandi til Íslands en Annþór hugðist taka á móti þeim hér. Samkvæmt ákæru miðlaði Annþór upplýsingum milli Ara og óþekkts sendanda um tilhögun sendingarinnar og afhenti Ara 10 þúsund evrur, jafnvirði um 1,2 milljóna króna, og 500 þúsund krónur í reiðufé sem þóknun vegna innflutningsins. Annþór afplánar nú eftirstöðvar dóms sem hann hlaut fyrir líkamsárás en hann komst í fréttirnar í febrúar þegar hann flúði úr haldi lögreglunnar. Hann segist ekki hafa átt þau fíkniefni sem fundust heima hjá honum og segist hann ekki hafa vitað af þeim. Tómas Kristjánsson er sakaður um að hafa lagt á ráðin um innflutininginn ásamt Jóhannesi Páli. Samkvæmt ákæru á Tómas að hafa notað sér aðstöðu sína sem starfsmaður hraðsendingarfyrirtækisins UPS á Keflavíkurflugvelli til þess að miðla til Jóhannesar upplýsingum um hvernig haga skyldi innflutningnum. Þegar efnin voru haldlögð gerði hann Jóhannesi Páli viðvart um það þannig að ekki var reynt að nálgast þau hjá fyrirtækinu. Tómas hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins frá því í janúar. Þá er Jóhannes Páll Gunnarsson ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um innflutninginn með Tómasi og Ara og miðlað upplýsingum milli þeirra um hvernig haga skyldi sendingu fíkniefnanna þannig að þau kæmust til Annþórs án afskipta yfirvalda. Þá upplýsti hann Ara bróður sinn um að efnin hefðu verið haldlögð. Jóhannes Páll starfaði í fjármálaráðuneytinu og gerði lögreglan húsleit þar í tenglsum við rannsókn málsins. Ara Gunnarssyni er gefið að sök í ákæru að hafa komið skilaboðum milli Jóhannesar Páls og Annþórs um hvernig best væri að haga sendingu fíkniefnanna þannig að þau kæmust til Annþórs án afskipta yfirvalda. Ætlaði Ari að sjá til þess að Annþór gæti nálgast efnin hér á landi. Bæði Jóhannes Páll og Ari sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira