Innlent

Rannsókn á flótta Annþórs stendur enn yfir

Stefán Eiríksson lögreglustjóri.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri.

Að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, stendur rannsókn á því hvað fór úrskeiðis þegar Annþór Kristján Karlsson strauk úr gæsluvarðhaldi á föstudaginn síðasta ennþá yfir. Að hans sögn er engrar yfirlýsingar að vænta um málið í dag.

Það var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði Annþór í sinni vörslu daginn sem hann strauk. Fara átti með hann fyrir dómara og fá gæsluvarðhald framlengt þann dag. Undir venjulegum kingumstæðum eru gæsluvarðhaldsfangar annars ávallt vistaðir á Litla-Hrauni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×