Enski boltinn

Barton þarf að dúsa áfram í fangelsi

NordcPhotos/GettyImages
Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle þarf að sitja í fangelsi í allt að einn mánuð í viðbót. Leikmaðurinn, sem situr í fangelsi vegna ofbeldisbrota, hafði gert sér vonir um að fá sig lausan mánuði fyrr en ætlað var gegn því að ganga með eftirlitsbúnað.

Þessari beiðni hefur verið synjað ef marka má breska fjölmiðla og því þarf Barton að dúsa áfram í Strangeways fangelsinu alræmda, sem hýsir nokkra af hörðustu glæpamönnum Englands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×