Erlent

Bróðir númer tvö handtekinn

Margir af ráðamönnum Rauðu Kmeranna eru enn eftirlýstir.
Margir af ráðamönnum Rauðu Kmeranna eru enn eftirlýstir.

Fyrrum næstæðsti yfirmaður Rauðu Kmeranna í Kambódíu, Nuon Chea, hefur verið handtekinn af sérstökum dómstól á vegum Sameinuðu þjóðanna sem rannsakar nú fjöldamorð Kmeranna á valdatíð þeirra í landinu.

Chea, sem nú er 82 ára gamall, var næstur að tign eftir Pol Pot og almennt kallaður Bróðir númer tvö. Hann verður nú yfirheyrður af dómstólnum og ákvörðun tekin um hvort hann verði ákærður. Talið er að Rauðu Kmerarnir hafi drepið yfir milljón manns á valdatíð sinni í Kambódíu árin 1975 til 79.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×