Enski boltinn

Levy biður stuðningsmenn afsökunar

Stuðningsmenn Tottenham fundu til með Jol eftir að hann varð síðasti maðurinn til að frétta að hann hefði verið rekinn
Stuðningsmenn Tottenham fundu til með Jol eftir að hann varð síðasti maðurinn til að frétta að hann hefði verið rekinn NordicPhotos/GettyImages

Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, sendi frá sér yfirlýsingu á heimasíðu félagsins þar sem hann harmar hvernig staðið var að uppsögn Martin Jol hjá félaginu.

"Við gerum okkur grein fyrir því að við hefðum átt að standa betur að þessu en við gerðum en við Martin ræddum málin ekki fyrr en eftir leikinn við Getafa og fréttir um annað voru byggðar á getgátum. Það er leiðinlegt þegar einstaklingar verða fyrir barðinu á því þegar hlutirnir leka í fjölmiðla," sagði Leyy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×