Leikmenn keyptir fyrir 65 milljarða 3. september 2007 13:34 Fernando Torres var eitt stærsta nafnið á útblásnum leikmannamarkaðnum í sumar NordicPhotos/GettyImages
Knattspyrnufélögin í ensku úrvalsdeildinni hafa aldrei verið eins dugleg að kaupa leikmenn og í ár. Nýtt met var sett í sumar og hafa félögin á Englandi þegar eytt yfir 500 milljónum punda til leikmannakaupa eða um 65 milljörðum króna. Gamla metið frá í fyrra var 300 milljónir punda. Það er ráðgjafarfyrirtækið Deloiette sem gefur upp þessar tölur og segir helstu ástæðu þessarar gríðarlegu aukningar vera auknar sjónvarpstekjur til félaga í ensku úrvalsdeildinni. "Félögin hafa eytt áður óþekktum upphæðum til leikmannakaupa í ár, en það kemur að sjálfu sér ekki á óvart því úrvalsdeildarfélögin fá um 300 milljónum punda meira í sjónvarpstekjur í ár en verið hefur," sagði talsmaður Deloiette. Félögin í úrvalsdeildinni eyddu um 140 milljónum punda meira til leikmannakaupa á þessu ári en í fyrra, en þó hafa félögin alls ekki eytt í sömu hlutföllum og tekjur þeirra hafa aukist. Það var Manchester United sem eyddi mestu fé til leikmannakaupa í sumar eða 51 milljón punda (6,6 milljörðum króna), Liverpool eyddi 50 milljónum punda (6,47 milljörðum króna), Tottenham 40 milljónum punda og nýliðar Sunderland eyddu 35 milljónum punda. Arsenal og Chelsea fengu hinsvegar um 10 milljónir punda fyrir selda leikmenn. Tólf félög í úrvalsdeildinni eyddu meira en 10 milljónum punda til leikmannakaupa í ár á meðan aðeins þrjú félög eyddu svo miklu fyrir síðustu leiktíð (Tottenham, Chelsea og Liverpool). Um helmingurinn af þeim 500 milljónum punda sem úrvalsdeilarfélögin eyddu í sumar fór til félaga utan Englands. Félögin á meginlandi Evrópu hafa líka verið duglegri að eyða en hingað til og þar var Real Madrid fremst í flokki með um 80 milljón punda eyðslu til leikmannakaupa. Barcelona og Atletico Madrid komu næst með um 50 milljón punda eyðslu. Spænska deildin var sú sem komst næst ensku úrvalsdeildinni í eyðslu, en var þó aðeins hálfdrættingur með um 250 milljón punda eyðslu. Að lokum má geta þess að félögin í fimm stærstu deildum Evrópu eyddu samtals um 1 milljarði punda til leikmannakaupa - eða tæplega 130 milljörðum króna.
Enski boltinn Mest lesið Sviss - Ísland 38-38 | Strákarnir okkar stálu stigi eftir slakan leik Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Í beinni: Svíþjóð - Ungverjaland | Ísland vonast eftir sænsku tapi eða jafntefli Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Svona er staðan: Strákarnir okkar þurfa að treysta á sænskt eða króatískt tap Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira