Markalaust hjá Blackburn og Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2007 19:06 Dirk Kuyt fékk nokkur góð marktækifæri í dag. Nordic Photos / Getty Images
Blackburn og Liverpool skildu jöfn í markalausum leik á Ewood Park í dag. Blackburn fór með stiginu upp að hlið Portsmouth og Manchester City í 4.-6. sæti deildarinnar. Liverpool er í sjöunda sæti deildarinnar með 21 stig, einu stigi á eftir fyrrgreindu liðunum. Liverpool er þó enn taplaust en hefur nú gert sex jafntefli í ellefu leikjum. Þetta var fimmta jafntefli liðsins í undanförnum sjö leikjum eða síðan að Liverpool vann stórsigur á Derby á heimavelli, 6-0. Peter Crouch fékk ekki sæti í byrjunarliðinu þrátt fyrir að hann hafi staðið sig ágætlega í leiknum gegn Arsenal í síðustu viku. Rafa Benitez, stjóri Liverpool, ákvað þess í stað að hafa Dirk Kuyt einan upp á topp. Momo Sissoko kom í stað Xabi Alonso á miðjunni en hann á við meiðsli að stríða. Yossi Benayoun og Ryan Babel voru einnig í byrjunarliðinu. Hjá Blackburn gerði Mark Hughes tvær breytingar en fyrirliðinn Ryan Nelsen er kominn aftur í liðið sem og Norðmaðurinn Morten Gamst Pedersen. Leikurinn fór afar rólega af stað eftir afar fjörugan dag í ensku úrvalsdeildinni í dag. Blackburn fékk gott færi undir lok hálfleiksins þegar David Bentley skaut í stöngina á marki Liverpool eftir laglegan undirbúning Pedersen. David Dunn átti svo þrumuskot í slána en en heppnin var með Liverpool í fyrri hálfleik í dag. Meira gerðist ekki markvert í fyrri hálfleiknum. Blackburn átti betri færi í upphafi síðari hálfleiks en færði sér þau ekki í nyt. Það voru hins vegar gestirnir frá Liverpool sem voru nærri því að skora undir lok leiksins og þá sérstaklega Dirk Kuyt. Hann skapaði sér gott svæði á hægri vængnum og kom inn í teiginn í góðu færi. Hann misskildi hins vegar eitthvað hlaup Steven Gerrard og rétti nánast Brad Friedel markverði Blackburn boltann. Gerrard átti svo skot sem Freidel varði eftir undirbúning Kuyt og þá bjargaði Bentley á línu frá varamanninum Peter Crouch. Friedel varði svo vel frá Gerraard þegar Gerrard á fast skot að marki eftir undirbúning Crouch. Skömmu síðar átti svo Kuyt skot sem fór himinhátt yfir mark Blackburn úr góðu færi. Nær komst Liverpool þó ekki. Það var þó jákvætt fyrir þá rauðklæddu að Harry Kewell lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í dag er hann kom inn á sem varamaður.
Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Sport Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Manchester United | Stórveldi slást um stigin þrjú Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Sjá meira