Lescott kallaður í enska landsliðið 3. september 2007 12:19 Joleon Lescott NordicPhotos/GettyImages
Miðvörðurinn öflugi Joleon Lescott hjá Everton hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn sem mætir Israelum á Wembley í undankeppni EM á laugardaginn. Lescott hefur farið mikinn með Everton í upphafi leiktíðar, en hann tekur stöðu Sol Campbell hjá Portsmouth í landsliðinu eftir að sá síðarnefndi meiddist. Miðjumaðurinn Frank Lampard hjá Chelsea mun líklega missa af leiknum við Ísrael vegna meiðsla, en Steve McClaren landsliðsþjálfari er bjartsýnn á að Steven Gerrard fyrirliði verði búinn að ná sér af sínum meiðslum. Áður hafði framherjinn Emile Heskey hjá Wigan verið kallaður inn í hópinn, en nokkuð framherjahallæri ríkir í enska hópnum um þessar mundir. Joleon Lescott hefur byrjað leiktíðina afar vel með Everton, en auk þess að vera eins og klettur í varnarleiknum, hefur hann náð að læða sér í sóknina inn á milli og skora tvö mörk. "Joleon hefur verið frábær með Everton á báðum endum vallarins og svo er hann líka fjölhæfur og getur spilað stöðu bakvarðar. Hann kom inn sem varamaður með B-landsliðinu í vor og þar hreifst ég af frammistöðu hans. Ég hef fulla trú á því að hann geti unnið sér sæti í aðalliðinu í framtíðinni," sagði McClaren landsliðsþjálfari í samtali við breska sjónvarpið í dag.
Enski boltinn Mest lesið Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Sviss - Ísland 38-38 | Strákarnir okkar stálu stigi eftir slakan leik Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Svona er staðan: Strákarnir okkar þurfa að treysta á sænskt eða króatískt tap Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira