Leikmaður 5. umferðar: Xabi Alonso 3. september 2007 11:57 Alonso var frábær í stórsigri Liverpool á Derby um helgina og skoraði tvö mörk NordicPhotos/GettyImages
Spænski miðjumaðurinn Xabi Alonso er leikmaður fimmtu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Alonso tók upp hanskann fyrir Steven Gerrard um helgina þegar Liverpool valtaði yfir nýliða Derby County 6-0 og skoraði tvö mörk í leiknum. Liverpool mætti Derby á heimavelli um helgina og var liðið án lykilmannanna Steven Gerrard og Jamie Carragher. Það kom þó ekki að sök gegn slökum nýliðunum, sem virðast eiga langa leiktíð fyrir höndum ef marka má fyrstu leikina í haust. Flestir leikmenn Liverpool áttu frábæran dag, en það var Alonso sem fór fyrir liðinu með frábærri frammistöðu á miðjunni. Alonso er ekki vanur að blanda sér í hóp markaskorara hjá Liverpool, en hann opnaði markareikning liðsins með því að skora fyrsta markið úr aukaspyrnu af hátt í 40 metra færi. Hafi verið heppnisstimpill yfir fyrra markinu, var ekkert slíkt uppi á teningnum þegar hann skoraði fjórða mark liðsins með hnitmiðuðu skoti. Enskir fjölmiðlar voru á einu máli um að Alonso hafi verið í sérflokki á miðjunni í sterku liði Liverpool um helgina, þar sem hann stýrði hraðanum í leiknum og átti frábærar sendingar. Ljóst er að Spánverjinn fær öfluga samkeppni um stöðu í liði Liverpool í vetur þar sem einvalalið miðjumanna er í hópi Rafa Benitez, en Alonso sýndi það um helgina að landi hans mun ekki gleyma honum í bráð þegar hann velur byrjunarlið sitt. Nafn: Xabier Alonso Olano Fæddur: Tolosa á Spáni, 25 nóvember 1981 Félög: Real Sociedad, Eibar (lánsmaður), Liverpool Númer: 14
Enski boltinn Mest lesið Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Sviss - Ísland 38-38 | Strákarnir okkar stálu stigi eftir slakan leik Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Svona er staðan: Strákarnir okkar þurfa að treysta á sænskt eða króatískt tap Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira