Erlent

Rússar reiðir Bretum vegna bréfs Litvinenkos

ALEXANDER LITVINENKO SKÖMMU ÁÐUR EN HANN LÉST.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALEXANDER LITVINENKO SKÖMMU ÁÐUR EN HANN LÉST. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

 Það andar köldu milli rússneskra og breskra stjórnvalda í kjölfar opinberrar birtingar á bréfi njósnarans, Alexanders Litvinenkos. Bréfið skrifaði Litvinenko á banabeði sínu en í því sakar hann Vladimír Pútín, forseta Rússlands, meðal annars um að hafa ráðið sér bana.

Rússar eru sagðir reiðir Bretum fyrir að hafa ekki hindrað birtingu bréfsins.

Talsmaður breskra yfirvalda bendir hins vegar á að þar sem Litvinenko hafi verið undir eftirliti lögreglu en ekki í haldi hennar hafi ekki verið hægt að hindra ritun bréfsins né opinbera birtingu þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×