Erlent

Pinochet ekki lengur í lífshættu

Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra í Chile, er ekki lengur í lífshættu en læknar hans neituðu því að hafa ýkt veikindi hans til þess að koma í veg fyrir að hann færi fyrir rétt vegna ódæðisverka sinna á valdatíma sínum.

Pinochet, sem fékk alvarlegt hjartaáfall á sunnudaginn var, bíður þess ennþá að réttað verði yfir honum í þó nokkrum málum. Í síðasta mánuði gaf hann frá sér yfirlýsingu sem sagði að hann tæki fulla pólitíska ábyrgð á verkum sínum í embætti en talið er að hann beri ábyrgð á dauða allt að 4.200 manns í stjórnartíð sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×