Smástirnið Apophis getur ógnað jarðlífi 11. desember 2005 02:00
Vísindamenn telja enn á ný að jörðinni kunni að stafa ógn af smástirni. Það sem nú um ræðir hefur fengið nafnið Apophis eftir hinum egypska guð eyðileggingarinnar. Gert er ráð fyrir að leiðir þess og jarðarinnar geti legið saman nokkrum sinnum kringum árið 2030 en hættan á árekstri verði mest árið 2036. Daglega verður jörðin fyrir endalausu regni loftsteina, sem langflestir brenna upp og eyðast í lofthjúp jarðar. Stöku steinn er þó það stór að leifar hans ná til jarðar og árlega berast fréttir af slíkum steinum sem detta af himnum ofan, án þess þó að valda umtalsverðu tjóni. Saga jarðar ber þess hins vegar ótvíræð merki að mjög stórir loftsteinar hafa af og til skollið til jarðar með ógnvænlegum afleiðingum. Þannig hefur því verið haldið fram að gríðarstór loftsteinn sem skall til jarðar á Yucatanskaga í Mexíkó fyrir einum 65 milljónum árum, hafi orðið risaeðlunum að aldurtila.Dularfull sprenging í SíberíuSíðan mannskepnan komst til vits og ára eru engar öruggar heimildir fyrir stórárekstrum loftsteina og jarðar, en þó álíta margir vísindamenn að dularfull sprenging sem varð í Tunguska í Síberíu árið 1908 og varð fjölda manns að bana, hafi orsakast af því að lofsteinn sprakk í tætlur skammt frá jörðu. Hefur orka sprengingarinnar verið reiknuð allt að þúsund sinnum meiri en kjarnorkusprengjurnar sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Hiroshima undir lok síðari heimsstyrjaldar. Hættustig fjögurNú telja bandarískir vísindamenn hins vegar að stórt smástirni sem fyrst varð vart við um mitt ár í fyrra, geti hugsanlega rekist á jörðina á næstu áratugum. Um er að ræða stein sem er um 320 metrar í þvermál. Tölva hjá NASA, bandarísku geimvísindastofnuninni, reiknaði fyrst út að braut smástirnisins gæti legið hættulega nærri jörðu föstudaginn 13. apríl árið 2029. Og hættustig þessa var metið tveir á Torinoskalanum svokallaða sem nær upp í tíu. Nokkrum dögum síðar var búið að endurmeta stöðuna og hættustigið komið upp í fjóra sem er það hæsta sem nokkurt smástirni hefur fengið hjá NASA. Skalinn er reiknaður þannig að einn þýðir mjög lítið tjón á afmörkuðu svæði en tíu stórfelldar náttúruhamfarir sem yrðu stórum hluta mannkyns að fjörtjóni. Fer hjá í fyrstu atrennuVísindamenn hafa nú reiknað út braut Apophis með enn meiri nákvæmni en fyrr og segja að hættan á árekstri árið 2029 sé tiltölulega lítil þar sem allt bendi til að steinninn fari framhjá jörðinni í um þrjátíu þúsund kílómetra fjarlægð. Það er þó nógu nálægt til að ferlíkið verður greinilega sjáanlegt með berum augum. Til dæmis um að þessi fjarlægð er ekki svo ýkja mikil þegar geimurinn er annars vegar, má geta þess að þeir fjarskiptahnettir sem sveima hvað lengst frá jörðu eru í um 35 þúsund kílómetra fjarlægð frá yfirborði jarðar, þannig að steinninn fer töluvert nær en þeir. 13. apríl 2036En þó svo að við sleppum við Apophis 2029 erum við ekki laus við hann þar með því vísindamennirnir telja líklegt að smástirnið muni verða fyrir áhrifum af aðdráttarafli jarðar í þessari fyrstu ferð framhjá okkur. Og það mun hafa þær afleiðingar að braut steinsins breytist á þann veg að hann getur orðið æ nærgöngulli við jörðina. Og ef allt fer á versta veg þá getur þessi samdráttur Apophis og móður jarðar náð hámarki þann 13. apríl 2036 með því að steinninn rekist á jörðina. Stuggað við grjótinuAuðvitað byggist þessi hugsanlega atburðarás á útreikningum sem ef til vill eru ekki svo nákvæmir þegar reiknað er þrjátíu ár fram í tímann. Vísindamenn vilja þó ekki útiloka að þetta geti gerst og hvetja til þess að menn fylgist gaumgæfilega með Apophis og ferðum hans á næstu árum. Og NASA-menn hafa sett fram drög að aðgerðaáætlun til að verjast hugsanlegum árekstri Apophis og jarðar. Þar er bent á þann möguleika að senda geimfar til móts við smástirnið sem ætlað væri að stugga við því með einhverjum hætti; nægilega mikið til að breyta braut þess þannig að það lendi ekki inn á áhrifasvæði aðdráttarafls jarðar. Hollywood á undanSlík aðgerð minnir óneitanlega mikið á Hollywood-stórmyndina Armageddon frá 1998 þar sem Bruce Willis og aðrar ofurhetjur fara einmitt á geimfari til móts við smástirni sem ógnar tilveru jarðar. Tilgangurinn er að lenda á geimgrýtinu, koma þar fyrir kjarnasprengjum og sprengja steininn í smærri hluta sem brunnið geta upp í gufuhvolfinu. Allt gengur þetta eftir en vitanlega ekki fyrr en á síðustu stundu og eftir miklar hremmingar einsog vera ber í alvöru Hollywood-mynd. Nægur tími til stefnuOg það er kannski dæmi um að ímyndunarafl handritshöfunda Hollywood-mynda er ekki alltaf svo fjarri raunveruleikanum að NASA-menn telja það fyllilega raunhæfan möguleika að senda geimfar til móts við smástirni á borð við Apophis í því augnamiði að breyta braut þess. NASA tekur þó fram að verkefni sem þetta taki að minnsta kosti tíu til tólf ár í undirbúningi og framkvæmd. Þeir segja því enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu nú; það nægi að hefja þennan undirbúning kringum árið 2020 og þá verði aukinheldur hægt að reikna braut Apophis mun nákvæmar en nú. Með þessu er NASA ekki að leggjast gegn því að geimfar verði sent fyrr til móts við loftsteininn og segist stofnunin í sjálfu sér fagna því að fá tækifæri til að rannsaka fyrirbæri sem þetta hvenær sem er ef fjármunir fást til slíks.
Erlent Menning Mest lesið Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Danskur raunveruleikaþáttarkeppandi þurfti að skilja íslensku Erlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Erlent Þrír reyndu að komast undan lögreglu Innlent Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Erlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Erlent Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Innlent Fleiri fréttir Danskur raunveruleikaþáttarkeppandi þurfti að skilja íslensku Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Sjá meira