Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 5. ágúst 2026 19:52 Stefan Alexander Ljubicic skoraði þriðja mark Keflvíkinga í góðum sigri í kvöld. Vísir/Viktor Keflvíkingar héldu áfram góðu gengi sínu á grasinu í Keflavík með 3-0 sigri á KA í sautjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Keflavík gerði nánast út um leikinn með þremur mörkum á níu mínútum í fyrri hálfleik en þau skoruðu Sindri Snær Magnússon, Dagur Ingi Valsson og Stefan Alexander Ljubicic. KA-menn spiluðu manni fleiri síðasta hálftíma leiksins eftir að Eiður Orri Ragnarsson fékk sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap. KA-menn náðu ekki að nýta sér það. Þetta var fjórði heimasigur Keflavíkur í sumar og liðið hefur náð í tíu stig af tólf mögulegum í síðustu fjórum leikjunum á grasinu í Keflavík. Sigurinn skilar liðinu upp í fimmta sætið. KA-menn hafa aftur á móti tapað í fimm síðustu ferðum sínum suður og eru með fimmtán stig eins og nágrannar þeirra í Þór en með betri markatölu. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild karla Keflavík ÍF KA Íslenski boltinn