Pakistan

Pakistan

Höfuðborg: Íslamabad. Mannfjöldi: 241,5 milljónir (2025). Flatarmál: 881.913 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Segja Banda­ríkin enn með óásættanlegar kröfur

Íranskir fjölmiðlar segja það ekki rétt að viðræður um mögulegan frið við Bandaríkjamenn hafi tekið stakkaskiptum og að samkomulag gæti brátt legið fyrir. Íranir hafi enn ekki sent svar við nýjustu samningsdrögum Bandaríkjamanna og það þau drög innihaldi einhverjar „óásættanlegar kröfur“.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Telja sam­komu­lag lík­legt á næstu dögum

Utanríkisráðherra Íran segir að ríkisstjórn landsins muni eingöngu samþykkja „sanngjarnt og víðtækt“ friðarsamkomulag við Bandaríkin. Íranir muni standa vörð um lögmætan rétt sinn og hagsmuni. Starfsmenn Hvíta hússins segja samkomulag við Írani aldrei hafa verið líklegra en nú.

Erlent
Fréttamynd

Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnar­taumunum

Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína.

Erlent
Fréttamynd

Við­ræður eða ekki við­ræður, þarna er efinn

Einhverjar þreifingar virðast hafa átt sér stað á bakvið tjöldin milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran um mögulegar leiðir til að binda enda á átökin sem nú standa yfir, ef marka má erlenda miðla. Eiginlegar viðræður virðast þó ekki hafnar.

Erlent
Fréttamynd

Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir á­rásir Pakistana

Ráðamenn í Afganistan segja að rúmlega fjögur hundruð manns hafi dáið og 250 særst í loftárás Pakistana á meðferðarmiðstöð í Kabúl. Pakistanar segja Talibana ljúga og að nákvæmar loftárásir hafi þess í stað verið gerðar á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og skotmörk sem tengjast hryðjuverkastarfsemi.

Erlent
Fréttamynd

Pakistanar gerðu loft­á­rásir í Afgan­istan

Pakistan gerði nokkrar loftárásir á Afganistan í nótt. Að þeirra sögn beindust árásirnar að sjö meintum felustöðum vígamanna á landamærum landanna tveggja. Að minnsta kosti átján létust samkvæmt Talibönunum. 

Erlent
Fréttamynd

Tugir látnir eftir sprengju­á­rás í Islamabad

Að minnsta kosti 31 er látinn og 169 eru særðir eftir stóra sprengingu í mosku sjíta í höfuðborg Pakistan í dag. Fjölmargir voru við bænir í moskunni þegar sprengingin varð og leikur grunur á um að maður hafi sprengt sig í loft upp þar inni, eða rétt fyrir utan. Einhver vitni segjast hafa heyrt skothríð fyrir sprenginguna.

Erlent
Fréttamynd

Sprengdi sig í loft upp við dómshús

Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan dómshús í Islamabad í Pakistan í morgun. Þá særðust að minnsta kosti 27 í árásinni en enginn hópur hefur lýst yfir ábyrgð á henni enn sem komið er.

Erlent
Fréttamynd

„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst.

Erlent
Fréttamynd

Í­huga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum

Yfirvöld á Indlandi eru að íhuga að draga verulega úr flæði áa sem flæða til ræktunarlands í Pakistan. Á að gera það til að refsa Pakistönum fyrir mannskæða hryðjuverkaárás í indverska hluta Kasmír í síðasta mánuði. Indverskir ráðamenn eru þar að auki sagðir ósáttir við framgöngu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og embættismanna hans í aðdraganda og eftir vopnahlé.

Erlent
Fréttamynd

Vopna­hléið heldur en vígahugur ríkir enn

Vopnahlé milli Indlands og Pakistan virðist hafa haldið velli í nótt, þó ráðamenn ríkjanna hafi sakað hvorn annan um að brjóta gegn því. Nokkrum klukkustundum eftir að vopnahléið tók gildi í gær sökuðu Indverjar og Pakistanar hvorn annan um árásir.

Erlent
Fréttamynd

Vopna­hlé í höfn milli Ind­lands og Pakistans

Indverjar og Pakistanar hafa gert almennt vopnahlé sín á milli, með aðkomu ráðamanna í Bandaríkjunum. Umfangsmikil átök ríkjanna hafa átt sér stað undanfarna daga en bæði búa þau yfir kjarnorkuvopnum.

Erlent
Fréttamynd

Á­tökin ná nýjum hæðum

Árásir yfir landamæri Pakistan og Indlands virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi og í nótt. Ráðamenn í Pakistan gerðu árásir gegn indverskum herstöðvum og vopnageymslum í aðgerð sem fékk nafnið „Blýveggur“, lauslega þýtt. Indverjar svöruðu með eigin árásum og meðal annars á herstöð þar sem finna má höfuðstöðvar pakistanska hersins.

Erlent
Fréttamynd

Stigmögnunin heldur á­fram

Indverjar og Pakistanar skiptast enn á skotum og er óttast að átökin séu að vinda upp á sig. Indverjar segja Pakistana hafa gert árásir yfir landamærin með drónum og stórskotaliði í gærkvöldi og í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Gera enn á­rásir með drónum og eld­flaugum

Yfirvöld í bæði Indlandi og Pakistan segjast hafa skotið niður dróna og jafnvel eldflaugar frá hinum aðilanum í gærkvöldi og í nótt. Indverjar segjast hafa gert árásir á loftvarnarkerfi í Pakistan eftir að drónar og eldflaugar, sem beint hafi verið að hernaðarskotmörkum í Indlandi hafi verið skotnir niður yfir Indlandi.

Erlent
Fréttamynd

Heimila hernum að hefna fyrir á­rásirnar í gær

Yfirvöld í Pakistan saka Indverja um að hafa vísvitandi gert árásir á moskur og önnur borgaraleg skotmörk í Pakistan í gærkvöldi. Þeir segja 26 óbreytta borgara hafa fallið í þessum árásum, sem hafi verið gerðar á „ímyndaðar búðir hryðjuverkamanna“.

Erlent